Valur heldur toppsætinu, HK skellti Haukum og Fram marði botnliðið Anton Ingi Leifsson skrifar 12. mars 2019 21:13 Sigurbjörg Jóhannsdóttir fer inn úr hægri skyttunni í leik kvöldsins. vísir/vilhelm
Bikarmeistarar Vals halda toppsætinu í Olís-deild kvenna eftir að liðið vann tólf marka sigur á KA/Þór í Origo-höllinni í kvöld, 30-18. Valur varð bikarmeistari eftir öruggan sigur á Fram í kvöld en þær voru í stuði í kvöld. Þær voru 16-6 yfir í hálfleik og varð munurinn að endingu tólf mörk. Ragnhildur Edda Þórðardóttir, Íris Ásta Pétursdóttir og Lovísa Thompson gerðu allar fimm mörk hvor fyrir Val sem er með eins stigs forskot á Fram á toppi deildarinnar. Martha Hermannsdóttir, Sólveig Lára Kristjánsdóttir og Hulda Bryndís Tryggvadóttir gerðu allar fjögur mörk fyrir KA/Þór sem er í fimmta sæti deildarinnar. Það var einhver bikarþynnka í liði Fram sem marði botnlið Selfoss með einu marki, 26-25, eftir að Selfoss hafði verið einu marki yfir í hálfleik, 12-11. Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði sjö mörk fyrir Fram sem er í öðru sætinu, stigi á eftir toppliði Vals, en Selfoss er á botninum. Þær eru fimm stigum á eftir HK er þrjár umferðir eru eftir en Kristrún Steinþórsdóttir gerði fimm mörk fyrir Selfoss. HK gerði sér lítið fyrir og skellti Haukum, 26-22, í Digranesinu í kvöld. Haukarnir leiddu með einu marki í hálfleik, 12-11. HK er í næst neðsta sætinu með níu stig en Haukar eru í þriðja sætinu með 23 stig, tveimur stigum á undan ÍBV. Berta Rut Harðardóttir gerði fimm mörk fyrir gestina úr Hafnarfirði en Díana Kristín Sigmarsdóttir átti stórleik fyrir HK. Hún skoraði tíu mörk.
Olís-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira