Rólegheit í veðrinu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. febrúar 2019 07:30 Það ætti að viðra ágætlega til útivistar í dag miðað við veðurspána. vísir/vilhelm
Það verður rólegheita veður víðast hvar á landinu þó að líkur séu á skúrum eða éljum á víð og dreif að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Má svo búast við meiri vindi á morgun og rigningu sunnan til en hvassast verður allra syðst. Hitatölurnar ættu að hækka eilítið með auknum vindi en fyrir norðan verður víða vægt frost, einkum inn til landsins. „Með hækkandi sól eykst dægursveiflan í hitanum og þegar hægur vindur er fellur hitinn hratt þegar sólin sest. Frýs þá gjarnan það vatn sem sólin bræðir úr snjó yfir daginn eða fellur sem rigning og getur myndað lúmska hálku. Um helgina kólnar svo þegar norðaustanáttin nær aftur tökum á landinu með éljum fyrir norðan en björtu veðri lengst af syðra. Í byrjum næstu viku gætu tveggja stafa mínus tölur orðið algengar aftur, einkum yfir nóttina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu:Suðaustlæg eða breytileg átt í dag, yfirleitt 3-10 m/s. Stöku skúrir eða slydduél, en bjart með köflum fyrir norðan og austan síðdegis. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst.SA-læg átt á morgun 15-20 allra syðst, annars mun hægari, einkum N-til. Víða rigning um landið sunnanvert, en annars skýjað með köflum. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst, en sums staðar vægt frost á Norðurlandi.Á fimmtudag:Suðaustan 3-10 m/s, en austan 10-15 við S-ströndina. Dálítil rigning um landið sunnanvert, en þurrt norðan heiða. Hiti 1 til 6 stig, en kringum frostmarki fyrir norðan.Á föstudag:Austan- og suðaustan 10-18 m/s með rigningu, en slyddu eða snjókomu á köflum fyrir norðan. Hiti víða 2 til 7 stig, en um frostmark N-til.Á laugardag:Norðaustlæg átt og snjókoma eða él N- og A-lands, en annars bjart með köflum. Frost víða 0 til 6 stig, en frostlaust syðst.
Veður Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira