Hringvegurinn opinn og frystir aftur í kvöld Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. febrúar 2019 07:29 Það kólnar aftur í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Vísir/vilhelm
Hellisheiðin var opnuð í nótt eftir að hún hafði verið lokuð frá því síðdegis í gær en þar er hálka samkvæmt heimasíðu Vegargerðarinnar. Þá var hringvegurinn milli Hvolsvallar og Víkur opnaður á ný í morgun. Í dag ræður hvöss norðaustanátt ríkjum og veður fer kólnandi í kvöld. Vegum var víða lokað í gær vegna óveðurs en vegurinn um Þrengsli er nú einnig opinn og sömu sögu er að segja af Mosfellsheiði. Vegurinn um Öræfi milli Gígjukvíslar og Jökulsárlóns hefur einnig verið opnaður. Á Lyngdalsheiði og Þingvallavegi er þó enn lokað en unnið er að mokstri. Nánari upplýsingar um færð á vegum má nálgast á vef Vegagerðarinnar.Frystir í kvöld Í dag má svo búast við norðaustanátt, víða 13-20 m/s, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Búast má við snjókomu eða éljum, einkum um landið austanvert, en þurrt að kalla suðvestanlands. Þá kólnar með deginum en frost verður frá 0 til 5 stigum í kvöld. Á morgun verður áfram norðaustanátt 8-15 m/s og él fyrir norðan og austan en léttskýjað suðvestanlands. Frost verður 0 til 8 stig. Svipað veður verður áfram á föstudag og laugardag en á sunnudag gengur norðanáttin líklega niður. Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á fimmtudag og föstudag:Norðaustan 8-15 m/s og él, en léttskýjað SV-til á landinu. Frost 0 til 8 stig og heldur kaldara á föstudag. Á laugardag:Norðan 10-18, skýjað og snjókoma eða él N- og A-lands. Kalt áfram. Á sunnudag:Minnkandi norðanátt og léttskýjað á S- og V-landi, en stöku él NA-lands. Talsvert frost. Á mánudag:Vaxandi suðaustanátt SV-til á landinu, fer að snjóa undir kvöld og dregur úr frosti. Hægari vindur N- og A-lands, þurrt og áfram kalt í veðri. Á þriðjudag:Suðlæg átt og rigning eða slydda, hiti 0 til 5 stig.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Sjá meira