Ráðið í starf landsliðsþjálfara í lok febrúar Hjörvar Ólafsson skrifar 7. febrúar 2019 11:30 fréttablaðið
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta hefur verið án þjálfara síðan Ívar Ásgrímsson lét af störfum sem þjálfari liðsins í lok nóvember. Ívar sem hafði þjálfað íslenska liðið síðan árið 2014 hætti störfum eftir tap gegn Bosníu Hersegóvínu. Hannes S. Jónsson, formaður Körfuboltasambands Íslands, KKÍ, segir í samtali við Fréttablaðið að sambandið hafi nýtt tímann frá því að undankeppninni lauk til þess að fara yfir stöðuna. Afreksnefnd KKÍ sé með málið á sinni könnu og ráðning á næsta landsliðsþjálfara sé í góðum farvegi. „Við höfum verið að hugsa málin, hvaða aðilar komi til greina í starfið, síðan Ívar hætti. Afreksnefnd KKÍ sér um að velja það hverjir koma til greina í starfið og leggur svo fram tillögu til stjórnar sambandsins sem sér um að semja við þann sem þykir hentugastur í starfið. Ég býst við því að það verði farið á fullt hvað undirbúning þessarar ráðningar varðar um miðjan febrúar og þjálfari svo ráðinn um mánaðamótin febrúar og mars,“ segir Hannes. „Það eru komin nöfn á blað og við munum svo ræða við þá sem eru á blaði hjá okkur upp úr miðjum febrúar. Næsta verkefni hjá liðinu er þátttaka á Smáþjóðaleikunum í maí þannig að það liggur ekkert á ennþá að ráða þjálfara fyrir liðið. Það má hins vegar ekki gerast seinna en í byrjun mars þannig að næsti þjálfari fái tíma til þess að undirbúa liðið fyrir næstu leiki liðsins. Við munum vanda til verka og ráða þjálfara sem er í stakk búinn til þess að leiða uppbyggingu liðsins næstu árin,“ sagði Hannes að lokum.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Sjá meira