Útlit fyrir hlýnandi veður og rigningu eftir helgi Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. febrúar 2019 07:32 Það gæti rignt á höfuðborgarsvæðinu eftir helgi. Vísir/hanna
Nokkuð hvöss norðaustanátt verður ráðandi í dag og á morgun, einkum suðaustanlands. Áfram verður frost fram yfir helgi en þá er útlit fyrir vaxandi úrkomu og hlýindi, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í dag er gert ráð fyrir heldur vaxandi norðaustanátt, víða 10-18 m/s síðdegis, en 13-25 m/s á morgun. Hvassast verður suðaustantil á landinu. Þá er búist við þurru og björtu veðri sunnan- og suðvestanlands en annars snjókomu eða éljum. Frost verður á bilinu 0 til 8 stig. Á laugardag lægir vindinn og hann verður með hægara móti á sunnudag en þá verður víða léttskýjað og talsvert frost. Á mánudag er svo útlit fyrir vaxandi suðaustanátt með úrkomu á Suður- og Vesturlandi og hlýnandi veðri.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á föstudag og laugardag:Norðaustan 10-18 og él, en þurrt og bjart veður á S- og SV-landi. Frost 1 til 9 stig. Á sunnudag:Minnkandi N-átt og víða léttskýjað, en skýjað NA-til á landinu. Talsvert frost. Á mánudag:Vaxandi suðaustanátt með slyddu eða snjókomu og síðar rigningu, en þurrt á N- og A-landi. Hlýnandi veður. Á þriðjudag og miðvikudag:Sunnanátt, vætusamt og milt, en úrkomulítið NA-lands
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira