Mesta frost vetursins mældist í dag Samúel Karl Ólason skrifar 27. janúar 2019 23:32 Trausti Jónsson, veðurfræðingur, segir þetta vera mesta frostið í byggðum í vetur og meira en mældist á síðasta ári. Vísir/Vilhelm
27,5 gráðu frost mældist í Möðrudal í dag. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, segir þetta vera mesta frostið í byggðum í vetur og meira en mældist á síðasta ári. Í Facebooksíðu Hungurdiska segir Trausti að síðasta vetur hafi frost mest farið í 29 gráður í Svartárkoti þann 29. desember.Þá segir Trausti að rétt rúm fimm ár séu síðan frost mældist síðast meira en 30 gráður. Það hafi síðast gerst þann 6. desember 2013 og þegar 31 gráðu frost mældist við Mývatn.Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands mældist mesti kuldinn á láglendi við Brú á Jökuldal í dag. Þar var 24,9 gráðu frost. Mesti hitinn á láglendi, 3,9 gráður, mældist í Surtsey.Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðaustan 10-18 m/s og víða snjókoma eða él, hvassast nyrst á Vestfjörðum og úti við SA-ströndina, en yfirleitt léttskýjað S- og V-lands. Frost 0 til 10 stig, minnst við sjávarsíðuna. Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag: Norðlæg átt, víða 8-15 m/s og snjókoma eða él N-til, en hvassara um tíma og meiri ofankoma seint á fimmtudag og snemma á föstudag. Lengst af léttskýjað sunnan heiða. Frost 2 til 15 stig, kaldast inn til landsins. Á laugardag: Útlit fyrir hæga vinda, bjartviðri og talsvert frost, en vaxandi suðaustanátt og fer að snjóa S- og V-lands um kvöldið og dregur úr frosti þar. Á sunnudag: Gengur í suðaustanátt með snjókomu eða slyddu S- og SV-lands og hiti um og yfir frostmarki, en hægari og þurrt á N- og A-landi og kalt í veðri.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira