Lífið

Erlendir Eurovision aðdáendur spá í spilin fyrir Söngvakeppnina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fjölmargir erlendir Eurovision-aðdáendur eiga eftir að fylgjast með keppninni í ár.
Fjölmargir erlendir Eurovision-aðdáendur eiga eftir að fylgjast með keppninni í ár.
Á laugardaginn var tilkynnt hvaða lög taka þátt í Söngvakeppninni 2019. Tíu lög keppa í ár og hefst keppnin þegar fyrri undanúrslitin  fara fram í Háskólabíói þann 9. febrúar en þá munu fimm lög keppa.

Seinni undanúrslitin fara fram 16. febrúar en þá verða seinni fimm lögin flutt. Tvö lög úr hvorri undankeppni komast áfram í úrslitin í gegnum símakosningu almennings. 

Það verða því fjögur lög sem keppa til úrslita í Laugardalshöll þann 2. mars þegar framlag Íslands til Eurovision söngvakeppninnar verður valið. Framkvæmdastjórn keppninnar hefur þó, sem fyrr, möguleika á að bæta við einu lagi í úrslitin, svokölluðum Svarta-Pétri (Wildcard).

Forkeppnirnar í Evrópu eru vinsælar hjá Eurovision-aðdáendum og eru til mörg þúsund eldheitir aðdáendur sem fylgjast með hreinlega öllu. Nú þegar hafa nokkrir þeirra tjáð sig um lögin tíu og spá í spilin hvaða lag fer alla leið.

Aðili sem kallar sig Amber Eurovision raðar lögunum upp eftir styrkleika frá 10. sæti í 1. sæti sem er lagið sem keppir fyrir Íslands hönd í Tel Aviv í maí.

Hann telur að Friðrik Ómar standi uppi sem sigurvegari í Söngvakeppninni í ár og það með lagið Þú bætir mig / Make Me Whole. Hans yfirferð má sjá hér að neðan.

YouTube-síðan Eurovision World er aftur á móti á því að Kristina Skoubo fari alla leið með lagið Mama Said. Hún er færeyingur en lagið er eftir Svein Rúnar Sigurðsson.

Eurovision S Pesc telur að Hera Björk hafni í fyrsta sæti í keppninni en hún flytur lagið Eitt andartak / Moving on.

Alan Torres  hefur sagt sitt álit á Söngvakeppninni og stendur hann fastur á því að Tara Mobee með lagið Betri án þín / Fighting For Love vinni Söngvakeppnina í ár.


Tengdar fréttir

Þessi taka þátt í Söngvakeppninni 2019

Nú er komið í ljós hvaða lög taka þátt í Söngvakeppninni 2019. Tíu lög keppa í ár og hefst keppnin þegar fyrri undanúrslitin fara fram í Háskólabíói þann 9. febrúar en þá munu fimm lög keppa. Þetta kemur fram í tilkynningu RÚV.

Vill að keppendur ráði sjálfir tungumálinu

FÁSES, félag áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sendi frá sér yfirlýsingu á dögunum þar sem aðstandendur Söngvakeppninnar eru hvattir til að endurskoða tungumálaregluna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.