Lífið

Eurovision-stjarnan Eleni Foureira kemur fram á úrslitakvöldinu

Eleni hafnaði í öðru sæti í fyrra.
Eleni hafnaði í öðru sæti í fyrra.
Söngkonan sem tók þátt fyrir hönd Kýpur í Eurovision í fyrra kemur fram á úrslitakeppni Söngvakeppninnar 2. mars í Laugardalshöll. Þetta kemur fram í tilkynningu frá RÚV.

Lagið Fuego í flutningi Eleni Foureira hreppti 2. sætið í keppninni í Lissabon í fyrra. Lagið hefur notið mikilla vinsælda hér á landi og var mest spilaða Eurovision-lagið á Íslandi í fyrra.

Í fyrra komu Eurovision-stjörnurnar Robin Bengtsson og Emelie de Forrest fram á úrslitakeppni Söngvakeppninnar en árið 2017 voru það þeir Måns Zelmerlöv og Alexander Rybak, íslenskum sjónvarpsáhorfendum til mikillar gleði.

Viðburðirnir verða fjórir.

9. febrúar í Háskólabíói – Fyrri lögin fimm í undankeppninni.

16. febrúar í Háskólabíói – Seinni lögin fimm í undankeppninni.

2. mars í Laugardalshöll – Fjölskyldurennsli kl. 14.30 – Aðalæfing á úrslitakeppninni sem fer fram um kvöldið. Eleni Foureira kemur fram.

2. mars í Laugardalshöll – Fjögur eða fimm lög keppa til úrslita og þar kemur í ljós hvaða lag verður framlag Íslendinga í Eurovision 2019 í Tel Aviv í maí. Eleni Foureira kemur fram, Ari Ólafsson flytur sigurlagið Our Choice frá því í fyrra í nýrri útgáfu auk þess sem boðið verður upp á önnur frábær skemmtiatriði.

Miðasala á Söngvakeppnina 2019 hefst miðvikudaginn 30. janúar kl. 12.00 á Tix.is.

Miðaverð:

Fyrri undanúrslit
 10. febrúar kl. 19.30 – Háskólabíó: 2.990 kr.

Seinni undanúrslit 16. febrúar kl. 19.30 -  Háskólabíó: 2.990 kr.

Fjölskyldurennsli – Aðalæfing 3. mars kl. 14.30 – Laugardalshöll: 1.990 kr.

Úrslit Söngvakeppninnar 2019 3. mars kl. 19.30 – Laugardalshöll: 3.990/4.990 kr.kr.


Tengdar fréttir

Þessi taka þátt í Söngvakeppninni 2019

Nú er komið í ljós hvaða lög taka þátt í Söngvakeppninni 2019. Tíu lög keppa í ár og hefst keppnin þegar fyrri undanúrslitin fara fram í Háskólabíói þann 9. febrúar en þá munu fimm lög keppa. Þetta kemur fram í tilkynningu RÚV.

Vill að keppendur ráði sjálfir tungumálinu

FÁSES, félag áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sendi frá sér yfirlýsingu á dögunum þar sem aðstandendur Söngvakeppninnar eru hvattir til að endurskoða tungumálaregluna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.