Fimmtán látnir í árásinni í Kenía Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 16. janúar 2019 06:56 Svo virðist sem árásarmennirnir hafi að mestu verið yfirbugaðir en fréttamenn á staðnum hafa þó heyrt skothvelli og sprengingar nú í morgunsárið. vísir/getty
Nú er ljóst að fimmtán eru látnir hið minnsta eftir að hryðjuverkasamtökin Al Shabab gerðu árás á lúxushótel í Naíróbí í Kenía í gær. Svo virðist sem árásarmennirnir hafi að mestu verið yfirbugaðir en fréttamenn á staðnum hafa þó heyrt skothvelli og sprengingar nú í morgunsárið. Nokkrir erlendir ferðamenn eru sagðir á meðal hinna látnu og bandaríska utanríkisráðuneytið hefur þegar staðfest að einn Bandaríkjamaður liggi í valnum. Árásin hófst um hádegisbil að íslenskum tíma í gær þegar fjórir vígamenn hentu handsprengjum að farartækjum fyrir utan hótelið áður en þeir ruddust þar inn, þar sem einn þeirra sprengdi sig í loft upp. Hinir þrír hófu síðan skothríð inni á hótelinu og tóku fólk í gíslingu. Lögreglan í Naíróbí umkringdi hótelið í gær og um klukkan átta gaf hún það út að tökum hefði verið náð á ástandinu. Þó liggur enn ekki fyrir hvað varð um árásarmennia og skothríðin í morgun bendir til að enn leiki einhverjir þeirra lausum hala.
Afríka Mest lesið Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Erlent Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Erlent „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Innlent Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Innlent Færeyingar fagna tvennum göngum Erlent Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar Innlent Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Erlent Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Innlent Stjórnarleiðtogar sitja fyrir svörum á Sprengisandi Innlent Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Hæstiréttur staðfestir dóm yfir Sarkozy Segir sýrlensku þjóðina þreytta og vilja fá að lifa í friði Sjá meira