Helena mætir Haukum í fyrsta sinn á Ásvöllum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2019 18:00 Helena Sverrisdóttir. Vísir/Vilhelm
Þetta verður örugglega svolítið skrýtið kvöld fyrir landsliðsfyirliðann Helenu Sverrisdóttur sem mætir þá með liði sínu Val í Schenkerhöllina á Ásvöllum. Haukar og Valur mætast klukkan 19.15 í kvöld í 16. umferð Domino´s deildar kvenna í körfubolta. Helena Sverrisdóttir er eins og flestir vita, uppalin í Haukum, og hefur þrisvar sinnum orðið Íslandsmeistari með Hafnarfjarðarliðinu. Helena vann fyrstu tvo Íslandmseistaratitlana með Haukum 18 og 19 ára gömul en þann síðasta nýorðin þrítug síðasta vor. Í millitíðinni var hún í háskólanámi í Bandaríkjunum og í atvinnumennsku í Evrópu. Helena byrjaði tímabilið í atvinnumennsku í Ungverjalandi en kom heim í október og valdi það að fara frekar í Val en að snúa aftur í Hauka. Leikurinn í kvöld verður fyrsti leikur Helenu á Ásvöllum þar sem hún er ekki í heimaliðinu. Hún hefur spilað ófáa leiki í húsinu á sínum ferli með bæði Haukum og íslensku landsliðunum. Helena er hinsvegar búin að mæta Haukum einu sinni með Val en fyrsti leikur hennar með Hlíðarendafélaginu var einmitt á móti Haukum á Hlíðarenda í lok október. Í þeim leik var Helena með 13 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar í sextán stiga sigri. Valsliðið hefur unnið sex af sjö leikjum sínum með Helenu innanborðs sem er með 17,6 stig, 7,7 fráköst og 6,3 stoðsendingar að meðaltali í þeim. Helena hefur oftast fundið sig mjög vel á Ásvöllum og var næstum því með þrennu í sautján leikjum sínum í húsinu í fyrravetur (19,9 stig - 13,8 fráköst - 9,7 stoðsendingar). Leikurinn í kvöld verður líka fyrsti opinberi keppnisleikur Helenu á Ávöllum síðan að hún varð Íslandsmeistari þar 30. apríl í fyrra. Helena var þá með 21 stig, 19 fráköst og 10 stoðsendingar í 74-70 sigri á Val í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Tveir aðrir leikir fara einnig fram í Domino´s deild kvenna í kvöld. KR og Stjarnan mætast í DHL-höllinni í Frostaskjóli og Skallagrímur fær Breiðablik í heimsókn í Borgarnes.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira