Ívar og Kjartan til Völku Atli Ísleifsson skrifar 3. janúar 2019 09:53 Ívar Meyvantsson og Kjartan Einarsson Valka
Ívar Meyvantsson og Kjartan Einarsson hafa verið ráðnir sem stjórnendur hjá hátæknifyrirtækinu Völku. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Ívar hafi nýverið tekið við starfi vöruþróunarstjóra, en vöruþróunarsvið er annað tveggja stærstu sviða innan fyrirtækisins og snýr starfsemi þess að hug- og vélbúnaðarþróun Völku. „Ívar hefur víðtæka reynslu af nýsköpun og vöruþróun innan hátæknifyrirtækja og starfaði hann meðal annars um árabil í tengslum við lyfjaþróun í Bandaríkjunum. Hann var rekstrarstjóri bandaríska lyfjafyrirtækisins Invenra Inc. og framkvæmdastjóri heilbrigðistæknifyrirtækisins Mentis Cura ehf. Ívar er menntaður verkfræðingur og lauk doktorsprófi í heilbrigðisverkfræði frá Wisconsin-háskóla í Bandaríkjunum. Kjartan Einarsson hefur verið ráðinn í starf yfirmanns daglegra innkaupa, birgðastýringu og lagers á framleiðslusviði Völku ehf. Kjartan hefur áralanga reynslu úr hátækniiðnaði og innkaupum, og undanfarin 15 ár vann hann við dagleg innkaup hjá Marel á Íslandi og stýrði þeirri einingu síðustu fjögur ár,“ segir í tilkynningunni. Valka hefur sérhæft sig í hönnun og markaðssetningu á tæknibúnaði og hugbúnaði fyrir fiskiðnaðinn, til að mynda beinaskurðarvélum.
Vistaskipti Mest lesið Play telur ríkið geta sparað sér tugi milljóna Viðskipti innlent Furðar sig á blekkingarbrigslum Heimildarinnar Viðskipti innlent Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Viðskipti innlent Ráðinn nýr framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi Viðskipti innlent Sorpa endurskoðar verðskrá vegna losunar hrossataðs Neytendur Góð kjör á afmælissýningu Toyota Samstarf Hafa bæst í eigendahóp PwC Viðskipti innlent Ráðin sviðsstjóri hafnarinnviða Viðskipti innlent Sjálfstætt starfandi fjölgar: Fljótlegt, einfalt og oft ódýrara Atvinnulíf Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Furðar sig á blekkingarbrigslum Heimildarinnar Play telur ríkið geta sparað sér tugi milljóna Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Hafa bæst í eigendahóp PwC Ráðin sviðsstjóri hafnarinnviða Ráðinn nýr framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Flugumferð aldrei verið meiri en á síðasta ári Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Ný gervigreindarlausn opnar fyrir sólarhringsþjónustu 1819 Nýr framkvæmdastjóri Kuehne+Nagel á Íslandi Kaupa meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf. Litlar breytingar á þorski í stofnmælingu Hafró Þurfa að greiða starfsfólki Flame enn fleiri milljónir Ráðinn sviðsstjóri viðskiptasviðs hjá Faxaflóahöfnum Íbúðum í byggingu fór fækkandi á milli ára Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Stefán Örn nýr eigandi hjá Rétti JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni Hótel Selfoss verður Marriott hótel Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Engin hópuppsögn í desember Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair Slitu kolefnisbindingarfyrirtækinu Running Tide Eigendum fjölgar hjá LOGOS Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Vigdís frá Play til Nettó Gjafabréf og alls konar flatbökudótarí vinsælar jólagjafir í ár Sjá meira