Vetur í dag en hlýnar aftur á morgun Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. janúar 2019 07:37 Það verður napurt í kvöld ef marka má hitaspá Veðurstofunnar. Skjáskot/veðurstofa íslands
Það verður vetrarlegt um að litast víða á landinu í dag með tilheyrandi frosti, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veturinn staldrar þó stutt við en aftur byrjar að hlýna í veðri á morgun. Í dag er spáð norðvestanátt og nokkru hvassviðri austantil á landinu. Snjókomu eða éljum fram yfir hádegi norðan- og austanlands en annars verður skýjað með köflum. Þá kólnar í veðri og verður frost víða 2 til 8 stig í kvöld. „En veturinn virðist ekki kominn til að vera að þessu sinni því á morgun er spáð vaxandi suðaustanátt með rigningu suðvestan- og vestanlands síðdegis. Og aftur hlýnar í veðri. Á miðvikudag er svo útlit fyrir hvassa og hlýja suðvestanátt með rigningu, en þurru veðri Norðaustur- og Austurlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á þriðjudag:Vaxandi suðaustanátt, 10-15 og rigning eða slydda síðdegis, en hægari og þurrt á N- og A-landi. Hlýnandi, hiti 2 til 7 stig um kvöldið en kringum frostmark A-lands.Á miðvikudag:Suðvestan 15-23 m/s og rigning, en þurrt A-til á landinu. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Austfjörðum.Á fimmtudag:Norðlæg eða breytileg átt og þurrt að kalla. Kólnandi, frost 1 til 7 stig síðdegis, en hiti 1 til 5 stig við S-ströndina.Á föstudag:Suðvestanátt og rigning eða slydda, en úrkomulítið á NA- og A-landi. Hlýnandi veður.Á laugardag:Norðlæg eða breytileg átt og él, en slydda eða rigning S-lands. Hiti nálægt frostmarki. Á sunnudag: Útlit fyrir sunnanátt með slyddu eða rigningu á S- og V-landi.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira