Fjölskylda konu sem eignaðist barn í dái æf Samúel Karl Ólason skrifar 9. janúar 2019 11:57 Þann 29. desember fæddi konan dreng og vissi starfsfólk stofnunarinnar ekki að hún væri ólétt. AP/Ross D. Franklin
Lögreglan í Phoenix í Bandaríkjunum hefur fengið heimild til lífssýnatöku allra karlkyns starfsmanna heilbrigðisstofnunar í Bandaríkjunum, þar sem kona, sem hefur verið í dái í rúm tíu ár, fæddi barn skömmu fyrir áramót. Fjölskylda konunnar, sem er af indíánaættum, er æf yfir málinu en hefur þó beðið um næði. Konan sem um ræðir féll í dá eftir að hún drukknaði næstum því fyrir rúmum tíu árum og hefur verið á sérstakri umhyggjustofnun síðan þá. Þann 29. desember fæddi hún þó dreng og vissi starfsfólk stofnunarinnar ekki að hún væri ólétt. Hún er nú 29 ára gömul. Forsvarsmenn ættbálks konunnar hafa, samkvæmt AP fréttaveitunni, sent frá sér tilkynningu þar sem þeir segjast hneykslaðir og í senn miður sín yfir meðferðinni á konunni. Þegar elskaður meðlimur samfélags sé í slíkri umönnun sé nauðsynlegt að treysta á fólkið sem annast viðkomandi. Ljóst sé að einhverjum þeirra hafi ekki verið treystandi og hann hafi brotið gegn henni.Lögmaður fjölskyldu konunnar segir að drengurinn hafi fæðst inn í góða fjölskyldu og séð verði um hann. Framkvæmdastjóri Hacienda HealthCare, stofnunarinnar sem konan var vistuð í, sagði af sér á mánudaginn og stjórn stofnunarinnar segir að allt verði gert svo hægt verði að komast til botns í þessu máli og tryggja öryggi sjúklinga og starfsmanna.
Bandaríkin Tengdar fréttir Heiladauð kona eignaðist barn eftir fjórtán ár í dái Talið er að karlkyns starfsmaður hafi misnotað konuna kynferðislega. 5. janúar 2019 12:49 Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira
Heiladauð kona eignaðist barn eftir fjórtán ár í dái Talið er að karlkyns starfsmaður hafi misnotað konuna kynferðislega. 5. janúar 2019 12:49