Útlit fyrir hið ágætasta áramótaveður Samúel Karl Ólason skrifar 30. desember 2018 07:43 Útlit er fyrir hið ágætasta áramótaveður á mestöllu landinu og þá ekki síst fyrir þá sem vilja upplifa brennur og flugelda. Fréttablaðið/Ernir
Veðurstofa Íslands varar við slæmu veðri á morgun, gamlársdag, víða um land. Á norðanverðu landinu er von á norðanstórhríð og hvassviðri eða stormi fyrir sunnan. Þó er búist við því að lægja muni víðast hvar og rofa til annað kvöld. Því sé útlit fyrir hið ágætasta áramótaveður á mestöllu landinu og þá ekki síst fyrir þá sem vilja upplifa brennur og flugelda. Í dag gengur er búist við 10-18 m/s austanátt með slyddu en síðan rigningu á sunnanverðu landinu. Von er á hægari vindi og þurrki fyrir norðan og að þar fari að snjóa upp úr hádegi. Snjókoman muni þó verða að slyddu eða rigningu seinna meir. Upp úr miðnætti spáir Veðurstofa Íslands því að vindurinn snúist í norðan 20-28 m/s, fyrst vestan til á landinu en síðar fyrir austan. Þá muni kólna í veðri. Hvassast verði á Vestfjörðum, Austfjörðum og undir Vatnajökli. Talsverð snjókoma eða skafrenningur verði á norðanverðu landinu en slydda eða rigning með köflum syðra. Annað kvöld muni lægja víðast hvar og rofa til og frysta um allt land.Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag (gamlársdagur): Norðan 20-28 m/s og snjókoma eða skafrenningur um morguninn, hvassast á Vestfjörðum, en yfirleitt hægari fyrir sunnan og slydda með köflum. Dregur ört úr vindi og ofankomu um V-til eftir hádegi, en hvessir verulega eystra, norðan 20-28 m/s og blindhríð þar seinni partinn, hvassast undir Vatnajökli. Hiti 0 til 5 stig S-lands, en vægt frost fyrir norðan. Lægir síðan víðast hvar og kólnar þegar nálgast miðnætti. Á þriðjudag (nýársdagur): Hægviðri, léttskýjað og talsvert frost framan af degi, en síðan vaxandi suðaustanátt og þykknar upp, 10-15 m/s og slydda en síðar rigning S- og V-til um kvöldið og hlýnar í veðri. Á miðvikudag, fimmtudag, föstudag og laugardag: Ákveðnar suðlægar áttir og víða vætusamt og hlýtt, en lengst af þurrt NA-lands.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Sjá meira