Meng Wanzhou, fjármálastjóri Huawei, var látin laus gegn tryggingu í Kanada í gær. Ellefu dagar eru nú liðnir frá því hún var handtekin, að beiðni Bandaríkjamanna, grunuð um að hafa afvegaleitt banka um ítök Huawei í Íran og þar með þá í hættu á því að brjóta gegn viðskiptaþvingunum. Bandaríkin fara fram á framsal hennar en málið hefur haft slæm áhrif á samband Bandaríkjanna og Kanada við risann í austri.
Samkvæmt Reuters þarf Meng nú að vera með ökklaband og þá þurftu fimm vinir hennar að ábyrgjast að hún myndi ekki flýja með veði í húsum sínum.
Dómari í Kanada á eftir að úrskurða um framsalið. Komist hann að því að málið gegn Meng sé nógu sterkt mun hún verða send til Bandaríkjanna þar sem hún á væntanlega ákæru í vændum og mögulega allt að þrjátíu ára fangelsisdóm.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tjáði sig um málið í samtali við Reuters. Sagði að ef það þjónaði þjóðarhagsmunum eða stuðlaði að nýjum viðskiptasamningi við Kína myndi hann taka fram fyrir hendur dómsmálaráðuneytisins í málinu.
Lu Kang, upplýsingafulltrúi kínverska utanríkisráðuneytisins, sagði á blaðamannafundi að handtakan hefði verið stór mistök.
„Við höfum tjáð Bandaríkjunum og Kanada að við lítum þannig á málið og förum fram á að ríkin leiðrétti þetta þegar í stað og leysi Meng Wanzhou úr haldi,“ sagði Lu og bætti því við að það væri jákvætt ef forseti Bandaríkjanna beitti sér fyrir lausn fjármálastjórans.
Trump gæti leyst Huawei-stýru úr haldi

Tengdar fréttir

Kínverjar segja réttarhöld yfir Huawei-stýru sýndarmennsku
Meng Wanzhou, fjármálastjóri Huawei og dóttir stofnanda kínverska tæknifyrirtækisins, mætti fyrir dóm í Vancouver í Kanada í gær og á sunnudag.

Kanada sver af sér tengsl við handtökuna
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, segir að ríkisstjórn hans hafi ekki komið nálægt handtökunni á Meng Wanzhou, fjármálastjóra kínverska tæknifyrirtækisins Huawei. Meng var handtekinn á flugvellinum í Vancouver á laugardag.

Kína handtekur kanadískan diplómata
Yfirvöld í Kína vildu ekki svara fyrirspurnum miðilsins um málið.