Vandræðaleg veisla á Bessastöðum Jakob Bjarnar skrifar 30. nóvember 2018 11:33 Meðan Ólafur Ísleifsson skemmti sé á Bessastöðum ákvað stjórn Flokks fólksins samhljóma að skora á hann að láta af þingmennsku. visir/vilhelm
Þingmannaveislan á Bessastöðum í gærkvöldi var samkvæmt heimildum Vísis vandræðaleg. Hún var haldin í skugga þess að í gær höfðu allir fjölmiðlar landsins fjallað ítarlega um upptökur sem höfðu borist DV og Stundinni þar sem heyra má Sigmund Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Braga Sveinsson, Bergþór Ólason og Önnu Kolbrúnu Árnadóttur Miðflokki auk þeirra Ólafs Ísleifssonar og Karls Gauta Hjaltasonar Flokki fólksins, láta dólgslega á Klaustur bar og ausa palladómum yfir samstarfsfólk sitt á þingi.Þeir Gunnar Bragi og Bergþór mættu ekki til veislunnar. Þeir Bergþór og Gunnar Bragi höfðu sig helst í frammi á barnum með meiðandi ummælum en engu að síður kom það ýmsum þingmönnum sem Vísir hefur rætt við það mjög á óvart að hin fjögur skildu mæta og láta sem ekkert væri. Glaðbeittir.Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sat til borðs með Guðmundi Inga, varaformanni Flokks fólksins, sem nýtur verulegrar samúðar meðal þingmanna vegna erfiðrar stöðu.visir/vilhelmEinn þingmaður sem Vísir ræddi við segist hafa metið það svo að það sætti furðu að þau skyldu ekki hafa séð sóma sinn í því að sleppa því að mæta. Rykið væri hvergi nærri sest og reyndar vandséð hvenær það verður; ljóst er að samstarfið á þinginu verður stirt í fyrirsjáanlegri framtíð.Túlkað sem svo að forsetinn væri að mælast til afsagnar Veislunni lauk snemma eða klukkan hálf tíu. Hún fór fram í nokkrum sölum Bessastaða og þótti Guðna Jóhannssyni forseta mælast vel þá er hann bauð þingheim velkominn til teitis. Þeir sem mættu voru í vandræðum, að sögn eins þeirra sem Vísir ræddi við, hvort þeir ættu yfirleitt að mæta vegna Klaustur-málsins. Það var hins vegar almennt metið svo í þingmannaliðinu að ekki væri hægt að láta nokkra dónakalla ráða því; þetta snérist fyrst og fremst um það að sýna forsetahjónunum virðingu. Forsetinn benti á að engin manneskja væri stærri en það embætti sem hann gegndi. Margir í salnum túlkuðu það sem svo að forsetinn væri að mælast til afsagnar þeirra sem teljast til Klaustur-gengisins. Þeirra tími á þinginu væri liðinn.Sigmundur Davíð mætir til veislu á Bessastöðum í gær. Hann sat sem keisari við enda ríkisráðsborðsins.visir/vilhelmEn, ekki er víst að allir hafi túlkað það svo. Í það minnsta ekki á borðinu hvar Karl Gauti og Ólafur Ísleifsson sátu ásamt nokkrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, svo sem þeim Birgi Ármannssyni, Njáli Trausta Friðbertssyni og svo Birgi Þórarinssyni Miðflokki. Þar voru hlátrasköll og slógu menn sér á lær. Samkvæmt heimildamanni Vísis mátti það heita fremur tilgerðarlegt.Sigmundur sem keisari við ríkisráðsborðið Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sat til borðs með Guðmundi Inga Kristinssyni, varaformanni Flokks fólksins. Víst er að hann og Inga Sæland njóta nokkurrar samúðar meðal þingmanna vegna ástandsins.. Inga var ekki á staðnum en á fundi stjórnar flokksins var samþykkt einróma að beina þeim tilmælum til þeirra Karls Gauta og Ólafs Ísleifssonar að þeir létu af þingmennsku. Píratar héldu saman, Samfylkingarfólk einnig en við hið svokallaða ríkisráðsborð sat meðal annarra Viðreisnarfólk, Rósa Björk Brynjólfsdóttir úr Vinstri grænum og þar við endann settist svo Sigmundur Davíð og að sögn heimildarmanns Vísis var það sérkennilegt, því þar mun hann hafa setið fremur afskiptur eins og keisari við borðsendann.Að neðan má sjá stemmninguna hjá þingmönnum á leið til veislunnar að loknu fyrirpartýi með fyrrverandi þingmönnum í þingskálanum á Alþingi.Uppfært klukkan 12:49Örnólfur Thorsson forsetaritari kannast ekki við að forseti Íslands hafi haft neitt um það að segja að Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson mættu ekki til veislunnar.Klippa: Skrýtin stemmning hjá þingmönnum á leið til veislu á Bessastöðum
Upptökur á Klaustur bar Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fleiri fréttir Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Sjá meira