Loka viðkvæmu svæði sem er nýkomið undan Breiðamerkurjökli Kjartan Kjartansson skrifar 27. nóvember 2018 18:30 Svæðið afmarkast af Jökulsárlóni að vestanverðu. Mynd/Stöð 2.
Akstur vélknúinna ökutækja hefur verið bannaður á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs til að vernda viðkvæmt svæði sem hefur komið undan jökli við hop Breiðamerkurjökuls undanfarin ár. Þjóðgarðsverðir telja að akstur þar geti valdið varanlegum umhverfisspjöllum. Tilkynnt var um ákvörðunina í stjórnartíðindum í gær. Svæðið er á austanverðum Breiðamerkursandi og afmarkast af Veðurá að austan- og sunnanverðu, Jökulsárlóni að vestanverðu og núverandi ísjaðri Breiðamerkurjökuls að norðanverðu. Lokunin er sögð ná til vetraraksturs, aksturs á snævi þakinni og frosinni jörð. Á svæðinu er engir vegir og gildi þar því að öðru leyti bann við akstri vélknúinna ökutækja utan vega í Vatnajökulsþjóðgarði. Lokunin gildir til 30. apríl. Þörf fyrir áframhaldandi vetrarlokun verður tekin í september. Forsendur ákvörðunarinnar nú eru sagðar þær að svæðið sem er nýkomið undan Breiðamerkurjökli sé viðkvæmt og að mestu leyti ósnortið af manna völdum. Akstur þar geti haft neikvæðar afleiðingar í för með sér þar sem hætta geti skapast á að varanleg slóð eða för myndist, jafnvel þótt jörð sé þakin snævi og frosin.
Loftslagsmál Umhverfismál Mest lesið Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Innlent Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Innlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Erlent Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Innlent Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Innlent Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Innlent Fleiri fréttir Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Grímuskylda og ósáttir vínsalar Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sjá meira