Reyndi að bíta sjúkraflutningamann Kjartan Kjartansson skrifar 10. nóvember 2018 19:11 Maðurinn reyndi að stela búnaði úr sjúkrabíl. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann sem reyndi að stela búnaði úr sjúkrabifreið í miðborginni í dag. Þegar sjúkraflutningamaður stöðvaði manninn og hélt honum reyndi maðurinn meðal annars að bíta hann. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að sjúkraflutningamenn hafi óskað eftir aðstoð þegar þeir voru staddir í verkefni í miðborginni um miðjan dag. Karlmaður hafi reynt að fjarlægja búnað úr sjúkrabifreið þeirra og hafa hann með sér. Sjúkraflutingamaður hafi náð að hefta för mannsins og halda honum þar sem lögreglumenn komu á staðinn. Maðurinn er sagður hafa verið í talsvert annarlegu ástandi sökum fíkniefnaneyslu. Hann var vistaður í fangaklefa. Ekki löngu síðar var tilkynnt um eld í listasafni í miðborginni. Búið var að slökkva eldinn þegar slökkvilið og lögregla kom á staðinn. Eldurinn hafði kviknað í ruslafötu á salerni safnsins. Útigangsfólk er sagt hafa verið inni á salerninu og „væntanlega“ kveikt í. Það fékk að halda sína leið eftir að lögregla tók af því skýrslu.
Lögreglumál Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Sjá meira