Heiðveig ruggar bátum í Sjómannafélaginu
Eins og fram hefur komið hugðist Heiðveig María bjóða sig fram til formanns félagsins á komandi aðalfundi sem til stendur að halda í desember. Hún hafði gagnrýnt stjórnina harðlega og í kjölfar þess voru kynntar á heimasíðu félagsins lagabreytingar sem samþykktar voru á síðasta aðalfundi að kjörgengir væru aðeins þeir sem hefðu greitt félagsgjöld í þrjú ár. Hins vegar hafði farist fyrir að kynna þetta fyrir almennum félagsmönnum. Heiðveig María hefur ekki greitt í félagið í svo langan tíma og var samkvæmt þessu ekki kjörgeng.
Uggvænlegar hræringar í verkalýðshreyfingunni
Í afar ítarlegri greinargerð fjórmenninganna, sem myndskreytt er með skjáskotum af fréttum sem fjallað hafa um þessar væringar, birtast þungar áhyggjur af uppgangi sósíalisma á Íslandi. Strax í upphafi er kafli sem kynntur er með millifyrirsögninni: „Sósíalistar ráðgera yfirtöku SÍ“.Þar segir: „Miklar hræringar hafa verið í pólitík og verkalýðshreyfingu á undanförnum misserum og ný forysta verið kjörin. Sérstaka athygli hafa vakið kosningar í VR, Eflingu og í borgarstjórn og hefur flokkur sósíalista verið sérstaklega nefndur til sögu. Haustið 2017 bárust símtöl til skrifstofu Sjómannafélagsins frá Gunnari Smári Egilssyni um tímasetningu stjórnarkjörs í Sjómannafélaginu.
Vb afhjúpar vofuna Gunnar Smára
Þá er vitnað óvænt í Viðskiptablaðið, grein sem heitir „Vofa í verkalýðshreyfingunni“ en þar er fjallað um (ill) áform Gunnars Smára að vilja leggja undir sig verkalýðshreyfinguna.
Fjórmenningarnir telja sig ekki þurfa frekari vitnanna við. Og það sem meira er: Ljóst megi vera að næst muni Sjómannafélagið verða fyrir uppgangi „vofunnar“.
Rakið er að þann 7. mars 2018 hafi ný stjórn verið kjörin í Eflingu. Því var fagnað af nokkrum forkólfum Sósíalistaflokks Íslands og í þeim fögnuði kvaddi sér hljóðs „fyrrnefnd Heiðveig María Einarsdóttir sem hafði verið í afleysingum til sjós í sex mánuði og aldrei mætt til fundar né komið á skrifstofur Sjómannafélags Íslands.“
Gunnar Smári vilji leggja félagið undir sig
Þá segir í greinargerðinni: „Hún sagði við það tilefni við fögnuð viðstaddra: „...næst er röðin komin að Sjómannafélagi Íslands.“ Sósíalistar voru að fagna yfirtöku hinnar fornu Dagsbrúnar þennan marsdag og pólitísk yfirtaka Hásetafélags Reykjavíkur, sem stofnað var 1915 og síðar varð Sjómannafélag Reykjavíkur og nú Sjómannafélag Íslands, var komin á dagskrá.
Þeir Arngrímur, Jón, Steinþór og Steinar segja að planið um yfirtöku Sjómannafélagsins hafi fyrst verið opinberað í Vofu-grein Viðskiptablaðsins. Og opinberlega hafi Heiðveig María þá staðfest framboð sitt á Facebooksíðu sinni en leynt tengslum sínum við Sósíalistaflokk Íslands, og meira að segja reynt að sverja þau af sér.
Talin hafa valdið félaginu tjóni
Of langt mál er að rekja efni greinargerðarinnar, sem er reyndar hin athyglisverðasta í alla staði, en þar er farið ítarlega yfir fréttaflutning af væringum innan félagsins. Í upphafi greinargerðar er vitnað í 10. grein laga Sjómannafélags Ísland þar sem segir meðal annars að Hver sá maður er brottrækur úr félaginu, í lengri eða skemmri tíma, sem að áliti trúnaðarmannaráðsfundar hefur unnið gegn hagsmunum félagsins, valdið því tjóni eða gert því eitthvað til vansa. Ljóst er að stjórn og trúnaðarmannaráð telja sök Heiðveigar í þeim efnum yfir vafa hafin.Niðurstaðan varð svo sú áðurnefnd að Heiðveig María var rekin úr félaginu með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða trúnaðarmannaráðs; atkvæðum 18 fundarmanna af 23, 4 fundarmanna voru mjög andvígir tillögunni og einn sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Heiðveig María hefur hins vegar gefið það út að hún muni leita réttar síns. Og er verið að safna undirskriftum til að boða til félagsfundar þar sem leitað er stuðnings við Heiðveigu Maríu.