Héraðsdómur Norðurlands eystra féllst á kröfu lögreglunnar um að karlmaður sem var í haldi þeirra vegna gruns um tilraun til manndráps verði úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna til loka þessa mánaðar.
Maðurinn var handtekinn á laugardaginn en greint var frá því í gær að hnífi hefði verið beitt eftir að áflog brutust út á milli tveggja manna á Geislagötu á Akureyri. Vitni urðu að atburðinum og kölluðu þau til lögreglu. Gerandinn yfirgaf vettvang áður en lögreglan kom, en var handtekinn skömmu síðar, og situr nú í gæsluvarðhaldi
Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á sjúkrahús og fór í aðgerð á laugardagskvöld. Hann er ekki talinn í lífshættu. Vitni voru yfirheyrð um kvöldið. Sömuleiðis var húsleit gerð á dvalarstað meints árásarmanns, þar sem blóðugur hnífur fannst falinn.
Innlent
Faldi blóðugan hníf á heimili sínu
Tengdar fréttir
Karlmaður úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna manndrápstilraunar
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að karlmaður sem grunaður er um tilraun til manndráps hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. nóvember.