Veiði

Ytri Rangá yfir 4.000 laxa

Karl Lúðvíksson skrifar
Lax þreyttur í Ytri Rangá en hún var aflahæst laxveiðiánna á liðnu sumri.
Lax þreyttur í Ytri Rangá en hún var aflahæst laxveiðiánna á liðnu sumri. Mynd úr safni
Þá er allri laxveiði lokið og lokatölur úr ánum komnar inná heimasíðu Landssambands Veiðifélaga sem heldur utan um vikuveiðina í ánum.

Það var æsispennandi lokakafli þegar Eystri Rangá og Ytri Rangá börðust um efsta sætið en það fór svo að Ytri Rangá hafði betur en Það munaði samt ekki miklu.  Lokatalan úr Ytri Rangá er 4.032 laxar og inní þeirri tölu er Ytri Rangá, vesturbakkinn og Hólsá.  Eystri Rangá er með 3.960 laxa sem er næstum því tvöföld veiði síðasta sumar en veiðin í Ytri Rangá er aftur á móti næstum því helmingi minni en góð veiði engu að síður.

Það er mjög áhugavert að skoða þessar lokatölur en þar sést vel hvað niðursveiflan var skörp í mörgum ám á norðurlandi á meðan árnar á vesturlandi bættu sig heldur milli ára.  Spútnikk svæðið er Urriðafoss, á því leikur engin vafi en heildarveiðin þar er 1.320 laxar á fjórar stangir en veiðin í fyrra var 755 laxar á tvær stangir.  Það er mikil eftirspurn eftir leyfum þar fyrir næsta tímabil og Veiðivísir telur nokkuð víst að það verði uppselt fyrr en seinna.  

Af náttúrulegu ánum er Miðfjarðará hæst með lokatölu upp á 2.719 laxa og er hún í þriðjasæti eftir Rangánum.  Þverá og Kjarrá með 2.472 laxa í fjórða sæti og Norðurá með 1.692 laxa í fimmta sæti.  Heildarlistann má finna á www.angling.is












×