Kynntu áætlun um gerð manngerðrar eyju fyrir 35 þúsund íbúa í Kaupmannahöfn Atli Ísleifsson skrifar 5. október 2018 10:18 Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, eftir að eyjan gæti verið tilbúin eftir um fimmtíu ár. Getty
Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, var á meðal þeirra sem kynntu í morgun áætlun um gerð nýrrar manngerðrar eyju í dönsku höfuðborginni. Ætlunin er að þar verði byggðar íbúðir fyrir um 35 þúsund manns. DR greinir frá þessu. „Við viljum búa til eyju. Alveg nýja eyju í Eyrarsundi milli Refshaleøen og Nordhavn. Við höfum valið að kalla hana Lynettehólma. Þetta er risaverkefni,“ sagði Løkke á blaðamannafundinum í morgun. Frank Jensen, aðalborgarstjóri Kaupmannahafnar, var einnig á fundinum og sögðu þeir Løkke að verkefnið væri liður í því að bregðast við íbúðaskorti í borginni. Með tilkomu fleiri íbúða verði hægt að koma í veg fyrir að fasteignaverð rjúki upp úr öllu valdi þannig að fleiri hafi efni á að búa í borginni. „Byggja á Lynettehólma með jörð sem kemur úr öðrum verkefnum,“ segir Løkke og bætir við að verkefnið sé einnig liður í því að bregðast við aukinni umferð í borginni, þétta byggð. Løkke segir að um langtímaverkefni sé að ræða og að eyjan kunni að verða tilbúin eftir um fimmtíu ár, eða árið 2070.Eyjan á að vera á milli Nordhavn og Refshaleøen.google maps
Norðurlönd Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk Sjá meira