Ferðalangar varaðir við stormi á morgun Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. september 2018 07:22 Djúp lægð nálgast í nótt með tilheyrandi hvassviðri og stormi. Vísir/Hanna
Í dag má búast við hægri vestlægri átt og skúrum eða éljum fram eftir degi en síðar léttir til. Í nótt nálgast djúp lægð suðvestan úr hafi og hvessir þá hraustlega af suðvestri og fer að rigna. Þannig verður víða hvassviðri eða stormur og talsverð rigning á morgun, en hægara og þurrt að kalla fyrir austan, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. „Þeir sem hyggjast leggja land undir fór á morgun ættu því að vera við öllu búnir, einkum ef farið er um Strandir, Norðvesturland og í Öræfi, því þar geta vindhviður náð 35 til 40 m/s,“ segir jafnframt á vefnum. Á laugardag verður lægðin komin langt norður fyrir land og leggst vindur þá í mun hægari norðanátt með skúrum eða éljum fyrir norðan, en birtir til syðra og kólnar nokkuð. Sunnudagsspáin lofar góðu veðri, en þó er útlit fyrir hressilegt íslenskt haustveður í fyrstu viku októbermánaðar.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á föstudag:Suðvestan 15-23 m/s, hvassast NV-lands og talsverð rigning S- og V-lands, en úrkomulítið NA-til. Dregur úr vætu undir kvöld. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast syðst.Á laugardag:Norðvestan 8-15 m/s og skúrir eða él á N- og A-landi, en annars léttskýjað. Hiti 0 til 9 stig, mildast með S-ströndinni.Á sunnudag:Vestlæg átt, 5-10 m/s og léttskýjað víða um land. Hiti 1 til 6 stig að deginum, en frystir víða um kvöldið.Á mánudag:Gengur í sunnanhvassviðri með talsverðri rigningu og hlýnandi veðri, en vestlægari og skúrir um kvöldið og kólnar aftur.Á þriðjudag:Vestlæg átt og skúrir, en léttir til eystra. Á miðvikudag: Útlit fyrir vaxandi austanátt með rigningu eða slyddu.
Veður Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira