Breiðablik Íslandsmeistari í sautjánda sinn Anton Ingi Leifsson skrifar 17. september 2018 18:51 Blikarnir fagna. vísir/daníel
Breiðablik er Íslandsmeistari í kvennaflokki í sautjánda sinn en liðið tryggði sér í kvöld sigurinn í Pepsi-deild kvenna með 3-1 sigur á Selfyssingum. Það fór hrollur um einhverja Blika er Grace Rapp kom Selfoss yfir á 23. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik. Eitthvað hefur Þorsteinn Halldórsson sagt í hálfleik því allt annað var að sjá Blika í síðari hálfleik. Markamaskínan Berglind Björg Þorvalsdóttir jafnaði metin á 50. mínútu og innan við mínútu síðar kom Alexandra Jóhannsdóttir Blikum í 2-1. Alexandra var ekki hætt því á 73. mínútu kom hún Breiðablik í 3-1 og tryggði því Blikum sautjánda Íslandsmeistaratitilinn, þann fyrsta síðan 2015. Breiðablik því tvöfaldur meistari en liðið vann einnig Borgunarbikarinn. Þetta er fyrsta tvennan hjá Blikum síðan 2005 en Breiðablik er á toppi deildarinnar, eðlilega, þegar ein umferð er eftir með 46 stig. Þór/KA er í öðru sætinu með 41 stig.Alexandra skoraði tvö mörk í kvöld.vísir/daníelÍBV slátraði HK/Víking 5-1 í Eyjum en Eyjastúlkur eru í fimmta sætinu með 25 stig og geta ekki farið neðar eða ofar í síðustu umferðinni. HK/Víkingur enda í sætum sex, sjö eða átta. Stjarnan rúllaði yfir fallið lið FH, 4-1, en Stjarnan er í þriðja sætinu og endar tímabilið þar. FH endar á botni Pepsi-deildarinnar með sex stig. KR vann svo 2-1 sigur á Grindavík en með þeim úrslitum er ljóst að Grindavík spilar í Inkasso-deild kvenna á síðustu leiktíð. KR heldur sæti sínu í Pepsi-deildinni en meira má lesa um leikinn hér. Frekari markaskorara má finna hér.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira