Óli Jóh: Dómarinn er náttúrulega Stjörnumaður Jón Ágúst Eyjólfsson skrifar 2. september 2018 17:31 Óli á hliðarlínunni síðasta sumar. vísir/ernir
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, sagði það hafa verið geysilega mikilvægt að hafa náð að jafna leikinn og fá stigið eftir jafntefli sinna manna á Akureyri í dag. Hann sagði KA liðið vera gott lið en vildi þó meina að það væri ansi mikið að fá á sig þrjú mörk í leiknum. Stigið sem hans menn sóttu varð til þess að Valur heldur toppsætinu, hafa fengið einu stigi meira en Stjarnan eftir 19 umferðir. Það er því von á spennandi lokaumferðum í haust. „Það eru þrír erfiðir leikir eftir í deildinni og ég held að það eigi margt eftir að gerast“ sagði Ólafur og bætti því við að „við þurfum að halda vel á spöðunum ef við ætlum að vinna þetta mót og við munum gera það.“ Valsmenn gerðu sterkt tilkall til vítaspyrnu á 83. mínútu og var Ólafur ekki í nokkrum vafa um að svo væri. „Það er engin spurning í mínum huga að það var náttúrulega púra víti.“ Ólafur furðaði sig sömuleiðis á vali á dómara fyrir leikinn. „Dómarinn er náttúrulega Stjörnumaður, hann er fæddur og uppalinn í Stjörnunni, nánast í Stjörnuheimilinu og auðvitað fór hann ekki að dæma víti fyrir okkur, það gaf augaleið.“ Patrick Pedersen, framherji Vals, þurfti að yfirgefa völlinn haltrandi en Ólafur hafði ekki miklar áhyggjur af því að hann yrði lengi frá og reiknar með að hann verði klár í næsta leik Valsmanna. Að lokum sagði Ólafur að jafntefli hafi í raun verið sanngjörn úrslit hér í dag. „Þetta var fjörugur leikur og tvö frábær lið og þegar uppi var staðið held ég að þetta hafi verið mjög sanngjarnt.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Handbolti Utan vallar: Ég get ekki meir Handbolti Átján ára orðin næstfljótust í sögu Íslands Sport „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Enski boltinn „Hræddir erum við ekki“ Sport Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Alfreð hættur hjá Breiðabliki Sjá meira