Landsliðskona kastaði upp eftir Þýskalandsleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. september 2018 13:30 Rakel Hönnudóttir. Vísir/Getty
Íslensku stelpurnar keyrðu sig algjörlega út í leiknum mikilvæga á móti Þýskalandi á Laugardalsvellinum á laugardaginn. Það mun því reyna mikið á þær sjálfar og starfsliðið við að ná fullri endurheimt fyrir Tékkaleikinn sem fer fram á sama stað á morgun. Einn af þeim leikmönnum sem eru tæpar fyrir Tékkaleikinn er Rakel Hönnudóttir. Rakel átti mjög erfitt eftir leikinn. Rakel spilaði í 84 mínútur en fór þá af velli fyrir Guðrúnu Arnardóttur. Rakel fékk fyrst krampa en svo fékk hún mígrenikast og kastaði upp. „Rakel lenti á vegg með líkamlega þáttinn. Hún kláraði allar orkubirgðar, fékk mígrenikast um kvöldið og kastaði upp. Það getur verið erfitt að fylla á tankinn og við sjáum hvað hún á af orku í dag," sagði Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, við Fótbolta.net í dag. Rakel Hönnudóttir spilar með sænska liðinu Limhamn Bunkeflo. Hún er einn reyndasti leikmaður íslenska liðsins enda orðin 29 ára gömul og með 94 landsleiki á bakinu. Það yrði því slæmt að missa þennan reynslubolta út fyrir leikinn á móti Tékkum . Íslensku stelpurnar verða að vinna til að eiga ennþá möguleika á því að komast á HM í Frakklandi 2019 en þær myndu þá tryggja sér sæti í umspilinu.
HM 2019 í Frakklandi Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Fleiri fréttir Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Sjá meira