Keyrðu aftur yfir Norðmenn í seinni hálfleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. september 2018 18:07 Hluti íslenska liðsins í Noregi mynd/kkí
Íslenska körfuboltalandsliðið vann 31 stigs sigur á Norðmönnum, 89-58, í seinni vináttulandsleiknum í Bergen í kvöld. Liðin mættust tvisvar á tveimur dögum í tilefni af 50 ára afmæli norska sambandsins en leikirnir eru einnig liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir forkeppni EM 2021. Craig Pedersen og aðstoðarþjálfarar hans nýttu tækifærið í þessum Noregsleikjum og gáfu fastamönnum frí en skoðuðu þess í stað leikmenn sem eru að banka á dyrnar. Emil Barja átti mjög góðan leik í kvöld og var stigahæstur með 15 stig auk þess að taka 6 fráköst og gefa 7 stoðsendingar. Gunnar Ólafsson var hins vegar kosinn maður leiksins en hann var með 13 stig og hitti úr 5 af 6 skotum sínum. Fyrirliðinn Ólafur Ólafsson skoraði 14 stig. Íslenska liðið vann tveggja stiga sigur í fyrri leiknum í gær eftir að hafa unnið upp 20 stiga forystu norska liðsins. Íslensku strákarnir áttu aftur mjög góðan seinni hálfleik en að þessu sinni var íslenska liðið með sex stiga forskot í hálfleik, 36-30. Seinni hálfleikurinn vannst með 22 stigum í gær og með 25 stigum í kvöld, 53-28. Ragnar Nathanaelsson minnti á sig með 12 stigum og 5 fráköstum á 14 mínútum og Collin Pryor var með 10 stig, 6 fráköst og 16 framlagsstig. Danero Thomas hitti ekkert betur en í gær og var með 2 stig og 4 framlagsstig á 20 mínútum.Stig Íslands: Emil Barja 15, Ólafur Ólafsson 14, Gunnar Ólafsson 13, Ragnar Nathanaelsson 12, Collin Pryor 10, Kristinn Pálsson 9, Kristján Leifur Sverrisson 6, Tómas Þórður Hilmarsson 6, Danero Thomas 2, Haukur Óskarsson 2. Íslenska liðið heldur nú aftur heim til Íslands þar sem undirbúningur hefst fljótt fyrir fyrsta leik Íslands í forkeppni EuroBasket 2021 gegn Portúgal um miðjan september.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira