Eyjakonur sóttu þrjú stig í Grindavík Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 8. september 2018 16:08 Eyjakonur gátu fagnað í dag Vísir/Hanna
Þremur leikjum var að ljúka í Pepsi-deild kvenna. Breiðablik er komið með níu fingur á Íslandsmeistaratitilinn, ÍBV vann Grindavík suður með sjó og Selfoss og HK/Víkingur skildu jöfn. Eyjakonur gerðu góða ferð til Grindavíkur þar sem þær náðu í stigin þrjú eftir 2-1 sigur. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir kom ÍBV yfir strax á fjórðu mínútu leiksins en Rio Hardy jafnaði tíu mínútum síðar úr vítaspyrnu. Eftir 33. mínútna leik kom Rut Kristjánsdóttir ÍBV aftur yfir og reyndist það vera sigurmarkið. ÍBV siglir lygnan sjó um miðja deild, en liðið situr í 5. sæti með 22 stig. Grindavík eru hins vegar í veseni en þær sitja í fallsæti, þremur stigum frá KR sem er í 8. sæti. Liðin mætast einmitt í næstu umferð í gríðarlega mikilvægum leik. Á Selfossi skildu heimakonur og HK/Víkingur jöfn. Unnur Dóra Bergsdóttir kom Selfossi yfir á 32. mínútu og var það staðan í hálfleik. Eftir tæplega klukkutíma leik jafnaði Kader Hancar metinn fyrir HK/Víking. Ekki voru fleiri mörk skoruð. Stigið gildir þó mikið fyrir bæði lið þar sem með jafnteflinu eru bæði lið formlega örugg með sæti sitt í Pepsi-deildinni að ári. Liðin eru í 6. og 7. sæti með 17 stig. Að lokum vann Breiðablik Íslandsmeistara Þór/KA í algjörum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Breiðablik vann 3-0. Alexandra Jóhannsdóttir skoraði tvö fyrstu mörk Blika áður en Agla María Albertsdóttir innsiglaði öruggan sigur heimakvenna.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira