Bíó og sjónvarp

Fjarlægðu atriði úr Predator vegna leikara sem hafði gengist við broti gegn barni

Birgir Olgeirsson skrifar
Olivia Munn í Predator.
Olivia Munn í Predator. 20th Century Fox
Leikkonan Olivia Munn er óhress með viðbrögð kvikmyndaversins Twentieth Century Fox eftir að hafa lýst yfir óánægju sinni með að þurfa að leika á móti manni, sem gerst hefur sekur um kynferðisbrot  gegn barni, í myndinni Predator sem er væntanleg í kvikmyndahús. 

Kvikmyndaverið hefur viðurkennt að hafa klippt senuna út þar sem Oliva Munn lék á móti manninum. Leikkonan gagnrýnir í dag hvað það tók kvikmyndaverið langan tíma að bregðast við kvörtunum hennar.

Leikstjóri PredatorShane Black, ákvað að ráða vin sinn Steven Wilder Striegel í lítið hlutverk í myndina. Striegel lék skokkara sem reynir við persónu Munn í myndinni.

Þegar Munn komst að því í sumar að Striegel hefði gengist við broti og setið inni lét hún kvikmyndaverið vita sem ákvað á endanum að klippa alla senuna úr myndinni.

Munn segir í dag að hún vildi óska að kvikmyndaverið hefði brugðist betur við kvörtun hennar og segist hafa mætt þögn stjórnenda þegar hún kom henni á framfæri.

„Það var algjör þögn í tvo daga eftir að ég hafði hringt í þá,“ segir Munn í viðtali við Variety. „Ég þurfti að hringja aftur og segja þeim að mér liði ekki vel með að eiga að kynna MTV verðlaunin með Keegan Michael Key (sem einnig leikur í myndinni) nema að búið væri að klippa gaurinn úr myndinni.“

Shane Black hefur beðist afsökunar á því að hafa ráðið vin sinn og segir tilraunir sínar til að hafa reyna að rétta honum hjálparhönd hafa borið vitni um slæma dómgreind. 

„Ég trúi á að fólk eigi að fá annað tækifæri – en svo kemst maður að því að sumir eiga það kannski ekki jafn mikið skilið og maður hafði vonað.“

Predator verður frumsýnd hér á landi 14. september. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.