Skoðun

Betra hinsegin líf - vilji er allt sem þarf

Sara Dögg Svanhildardóttir skrifar
40 ára afmæli Samtakanna 78 er fagnað í ár. Samtökin - og allir þeir einstaklingar sem þar hafa lagt hönd á plóginn - hafa unnið þrotlausa vinnu í þágu hinsegin fólks, til betri lífsgæða til framtíðar. Umhverfið var Samtökunum 78 oft andstætt í því starfi, en þau héldu ótrauð áfram. Af virðingu við baráttufólkið, framvarðasveitina en ekki síður af virðingu við hugsjónina sjálfa þá er tækifæri núna til þess að styðja enn betur við hinsegin fólk og fleyta baráttunni gegn fordómum enn lengra fram á við.

Þrátt fyrir víðtækan stuðning samfélagsins, sem lýsir sér m.a. í áunnum lagalegum réttindum, þátttöku í gleðigöngu Hinsegin daga og almennri viðurkenningu í garð hinsegin fólks, krefst það enn hugrekkis og kjarks fyrir hvern þann sem kýs að gera umheiminum grein fyrir hinseginleika sínum. Og það gera ekki allir, því miður.

Styrkjum sjálfsmynd

Við þekkjum mikilvægi sterkrar sjálfsmyndar barna og ungmenna og vitum að allir sem koma að mótunarárum þeirra skipta lykilmáli. Því er eins farið með hinsegin fólk, sem þar að auki mótar oft sjálfsmynd sína að hluta upp á nýtt út frá skilgreiningunni sem það samþykkir fyrir sjálft sig og um leið velur að gera umhverfinu í kringum sig grein fyrir. Til þess þarf styrk og sterkan grunn. Sterk sjálfsmynd er mikilvægt veganesti út í lífið, hver sem við erum og hvernig sem við kjósum að skilgreina okkur, en við þurfum að hlúa sérstaklega að og styrkja sjálfsmynd hinsegin fólks á öllum aldri.

Í allri mannréttindabaráttu skiptir fræðsla gríðarlega miklu máli fyrir öll framfaraskref. Skilningur og viðurkenning okkar á tilverurétti annarra er lykill að farsælu samfélagi allra. Leik- og grunnskólar eru lykillinn að upplýstri kynslóð og bættum lífsgæðum hinsegin fólks og aðstandanda þeirra, hvort heldur sem það eru börn hinsegin fólks, foreldrar eða aðrir aðstandendur. Þar eru sveitarfélögin í bestu aðstöðu til að láta gott af sér leiða í fræðslu og upplýstri umræðu.

Vilji er einfaldlega allt sem þarf

Fyrir hönd okkar í Garðabæjarlistanum legg ég fram tillögu þess efnis á bæjarstjórnarfundi Garðabæjar sem fram fer í dag. Tillögu sem felur það í sér að taka ábyrgð með því að gera þjónustusamning við Samtökin ‘78 um hinsegin fræðslu sem nýtist sem flestu starfsfólki Garðabæjar og um leið börnum og ungmennum. Garðabæjarlistinn leggur áherslu á tvenns konar inntak samnings. Annars vegar markvissa hinsegin fræðslu til ungmenna á grunnskólastigi og hins vegar almenna fræðslu fyrir starfsfólk Garðabæjar þar sem starfsfólki leik- og grunnskóla er veitt sérstök fræðsla en einnig þar sem boðið verður upp á hinsegin fræðslu fyrir allt starfsfólk. Ég hvet um leið sveitarstjórnir um allt land að taka málin í sínar hendur og taka þannig virkan þátt í að byggja upp samfélag fyrir alla. Líka fyrir hinsegin fólk. 

Uppræting fordóma er einmitt eina leiðin til þess að hinsegin fólk njóti öryggis í samfélaginu.

Höfundur er Sara Dögg Svanhildardóttir

Oddviti Garðabæjarlistans í bæjarstjórn Garðabæjar.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×