Hressilegar dembur í höfuðborginni Stefán Ó. Jónsson skrifar 31. júlí 2018 06:59 Það verður blautt í Borgartúni í dag. VÍSIR/ARNÞÓR
Veðurstofan gerir ráð fyrir því að austlægar áttir verði ríkjandi á landinu dag. Þeim munu fylgja skúrir sunnan- og vestanlands og búast má við „hressilegum dembum“ síðdegis á suðvesturhorninu. Hins vegar verður bjartara yfir Norðurlandi og verður þar þurrt að mestu. Þá er von á enn einni lægðarbólunni í kvöld, ef marka má spákort Veðurstofunnar. Hún mun koma að landinu úr austri og nær „rétt að sleikja“ norðaustur- og norðurströndina með rigningu fram á morgundaginn. Henni munu þó fylgja töluvert meiri skúrir á Suður- og Austurlandi, einkum sídegis á morgun. Lægðin hreiðrar um sig norður af landinu á morgun og mun beina vestlægum vindum yfir landið. „Hún tekur síðan á rás norður á bóginn á fimmtudag en þá verður hæglætisveður með skúrum í flestum landshlutum, einkum síðdegis og svipað á föstudag og laugardag,“ eins og það er orðað. Ný lægð myndast svo á Grænlandshafi á fimmtudag sem þokast nær landi á föstudag. Hún grynnist þó á leiðinni og því ekki líkleg til stórræða en gæti samt komið með rigningu syðst á landinu seint á föstudag og við austurströndina á laugardag. Áfram verður milt veður næstu daga.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ miðvikudag:Norðvestan og vestan 3-10 m/s, hvassast nyrst og syðst. Rigning við N-ströndina, síðdegisskúrir S- og A-lands, en annars úrkomulítið. Hiti 8 til 18 stig, svalast á N- og NV-landi.Á fimmtudag:Suðvestlæg átt, 3-8 og skúrir, einkum síðdegis. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast A-lands.Á föstudag:Hæg suðlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum A-til og stöku síðdegisskúrir, dálítil rigning við SV-ströndina, en annars skýjað og úrkomulítið. Hiti breytist lítið.Á laugardag, sunnudag og mánudag (frídagur verslunarmanna):Suðvestlæg átt og yfirleitt skýjað en úrkomulítið V-til, en bjart með köflum fyrir austan. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast A-lands.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira