Metsala á heitu vatni í rysjóttri tíð Jóhann K. Jóhannsson skrifar 21. júlí 2018 14:27 Við erum bara að kynda meira húsin okkar og það hefur verið kalt, segir upplýsingafulltrúi Veitna. VÍSIR/Egill
Metsala hefur verið á heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu það sem af er ári og er notkunin fyrstu sex mánuði ársins um tíu prósentum meiri en að meðaltali á ári. Notkun á heitu vatni hefur aukist um ríflega 20 prósent á síðustu fimm árum. Notkunin á heitu vatni það sem af er ári var mest í janúar og svo aftur í júní en í fjórum af sex fyrstu mánuðunum hefur notkunin verið meiri en árin á undan. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir rysjótta tíð hluta skýringarinnar. „Ég held að það hafi ekki farið fram hjá neinum hvernig veðrið hefur verið hérna á Suðurlandi í sumar og vor. Ætli það sé ekki helsta ástæðan. Við erum bara að kynda meira húsin okkar og það hefur verið kalt,“ segir Ólöf. Stærsti hluti heita vatnsins fer til húshitunar, eða um 90 prósent og segir Ólöf að fólk ætti að huga að heitavatnsnotkun sinni. „Þróunin síðustu árin hefur verið þannig að það hefur verið mikil aukning í notkun á heitu vatni. Það hefur mikil uppbygging á höfuðborgarsvæðinu. Aukin ferðamennska og annað, til dæmis hótelbyggingar, fjöldi þeirra hefur áhrif á hversu mikið heitt vatn við þurfum.“ Hún segir meðalheimili nota fjögur til fimm tonn á hvern fermetra á húsnæði, það sé töluvert. Hún segir Íslendinga duglega að hita hús sín enda með gott aðgengi að heitu vatni en það þurfi að huga að því að fara vel með það. Vatnsnotkun hefur aukist um 20 prósent á síðastliðnum 5 árum og segir Ólöf það ekki koma á óvart að það muni aukast enda fari kerfið stækkandi.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira