Fékk vin og fyrrverandi eiginkonu til að sanna stjórnlausa fíkniefnaneyslu á samningatímabilinu Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. júlí 2018 19:32 Bubbi Morthens, tónlistarmaður. visir/anton Brink
Bubbi Morthens þvertekur fyrir að hafa dróttað að broti gegn lögum með ummælum sínum um samninga hljómsveitanna Utangarðsmanna og Egó við útgáfufyrirtæki Steinars Bergs Ísleifssonar snemma á níunda áratugnum. Þá fékk hann vin sinn og fyrrverandi eiginkonu til að sanna stjórnlausa fíkniefnaneyslu sína á þeim tíma sem samningarnir voru gerðir. Bubbi telur ummæli sín jafnframt eiga erindi í samfélagsumræðuna, að því er fram kemur í dómi héraðsdóms. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Bubba og Ríkisútvarpið ohf. til að greiða Steinari samtals 500 þúsund krónur í miskabætur vegna ummæla um útgáfusamninga hans og Steinars. Ummælin lét Bubbi falla í sjöunda þætti sjónvarpsþáttaraðarinnar Popp- og rokksaga Íslands. Einnig voru ummæli sem Bubbi lét hafa eftir sér á vefmiðlum og Facebook dæmd dauð og ómerk.Keypti fíkniefni fyrir nánast allt útgáfuféð Áður en Bubbi skrifaði undir samning við Steinar hafði hann nýlega gefið út hljómplötuna Ísbjarnarblús í samstarfi við bókaútgáfuna Iðunni. Fullyrti Bubbi að eftir þá útgáfu hafi hann átt fúlgur fjár. Hann fullyrti einnig fyrir dómi að hann hafi keypt fíkniefni fyrir nánast allt féð sem hann fékk fyrir plötuna og jafnframt verið undir áhrifum fíkniefna frá morgni til kvölds á þessum tíma. Bubbi hafi samt verið „mjög frískur“ þegar hann hitti Steinar vorið 1980, þar sem fíknisjúkdómurinn þróist yfir langan tíma.Sjá einnig: Fyrrum gítarleikari Utangarðsmanna: „Ég hef ekkert slæmt að segja um Steinar Berg“ Viðskipti Bubba og Steinars hófust með útgáfusamningi Steinars hf. við Utangarðsmenn sama ár og sá Steinar um útgáfu á plötum sveitarinnar fram til næsta árs á eftir, 1981. Það sama ár gerði Steinar hf. nýjan útgáfusamning við hljómsveit Bubba, Egó, og sá um útgáfu þriggja platna sveitarinnar. Sú síðasta, „Egó“, kom út árið 1984. Steinar sagði tap hafa verið á samstarfinu við Utangarðsmenn, sem og samstarfinu við Egó. Reyktu kannabis eins og það væri tóbak Bubbi leiddi vin sinn og fyrrverandi eiginkonu sína fyrir dóm til að færa sönnur á að fíkniefnaneysla hans á árunum 1980-1982 hafi verið þvílík að Steinar hafi hlotið að gera sér grein fyrir því að Bubbi væri ekki fær um að gera samninga. Í máli konunnar kom fram að þau hefðu kynnst áramót 1985 og 1986. Þá hefði neysla stefnda verið mikil. Hann hefði reykt hass og stundum tekið kókaín í nefið. Að hennar sögn hafði stefndi ekkert vit á fjármálum og fól henni að sjá um þau. Vinurinn bar að neysla hans og stefnda hefði verið dagleg, svo mikil að þeir hefðu reykt kannabis eins og það væri tóbak. Um fíkniefnaneyslu Bubba á þessum tíma sagði Steinar að hann hefði vitað að Bubbi notaði hass. Hann hafi hins vegar aldrei orðið var við að stefndi væri undir áhrifum þegar þeir gerðu samningana sem eru hér til umfjöllunar.Steinar Berg og Bubbi Morthens.Vísir/GVA/AntonÁttaði sig á óviðunandi samningskjörum eftir meðferð Bubbi kveðst svo hafa farið í áfengis- og vímuefnameðferð hjá SÁÁ í fyrsta skipti í janúar 1985. Eftir endurtekna meðferð hafi honum loks tekist að hætta neyslu áfengis og vímuefna árið 1996. Þá hafi hann fyrst haft burði og getu til að kynna sér réttindi sín sem flytjanda tónlistar og þær viðskiptavenjur sem almennt séu viðurkenndar við gerð samninga um útgáfu tónlistar. Það hafi ekki verið fyrr en þá sem hann hafi gert sér grein fyrir því að þau samningskjör sem hann og aðrir listamenn í Utangarðsmönnum og Egó hafi notið hjá Steinum hf. hafi verið óviðunandi miðað við það sem hann hafi talið sanngjarnt. Ólögmætar og refsiverðar aðdróttanir Þá byggði Steinar á því að ummæli Bubba um samningana bæði í 7. þætti Popp- og rokksögu Íslands, svo og þau sem hann lét í kjölfarið falla á Facebook og á fréttaveitum netmiðla, séu ósönn og feli í sér ólögmæta og refsiverðar aðdróttanir. Aðdróttanir Bubba snúi að því að Steinar hafi hagnýtt sér meinta fákunnáttu eða reynsluleysi Bubba og meinta yfirburðastöðu sína sér til ávinnings. Þá héldi Bubbi því einnig fram að Steinar hafi nýtt sér bágt andlegt ástand hans vegna fíkniefnaneyslu í því skyni að hlunnfara hann í viðskiptum í ágóðaskyni fyrir sjálfan sig. Ummælin eigi mikið erindi í samfélagsumræðuna Bubbi þvertók hins vegar fyrir þessar aðdróttanir, hann hafi aldrei dróttað að broti gegn lögum eða að því að samningarnir væru ógildanlegir, heldur hafi hann gagnrýnt harkalega þau samningskjör sem hann hafi notið hjá Steinum hf. Efnislega eigi slík ummæli einnig mikið erindi í samfélagsumræðuna, enda séu tónlistarmenn alla jafna ungir að árum þegar þeir gangi fyrst til samninga við útgefendur og hafi litla sem enga þekkingu á réttindum sínum. Bubbi telji umræðu um tónlistarsögu Íslands og gagnrýni á kjör listamanna í samningum við útgefanda á tilteknu tímabili í þeirri sögu þarft innlegg í opinbera samfélagsumræðu og mótmæli fullyrðingum stefnanda annað. Í dómnum kemur þó fram að ekki verði séð að samningar við tvær hljómsveitir sem voru gerðir fyrir 34-36 árum sé málefni sem varði almenning né að þeir tilteknu samningar séu mikilvægt innlegg í umfjöllun um kjör tónlistarmanna. Auk þess geta efnislega röng ummæli vart gert mikið gagn í þjóðfélagsumræðu, jafnvel þótt hún fjallaði um kjör tónlistarmanna.
Dómsmál Tónlist Tengdar fréttir Búið að birta Bubba og Rúv stefnu Steinar Berg Ísleifsson hefur höfðað meiðyrðamál vegna ummæla Bubba í þættinum Popp- og rokksaga Íslands. 14. september 2016 13:47 Fyrrum gítarleikari Utangarðsmanna: „Ég hef ekkert slæmt að segja um Steinar Berg“ Danny Pollock ber Steinari Berg vel söguna. 18. ágúst 2016 12:33 Steinar Berg lagði Bubba og RÚV í meiðyrðamáli Þurfa að greiða Steinari 250 þúsund krónur í miskabætur. 26. júlí 2018 13:16 Mest lesið Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Innlent Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Innlent Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður Innlent Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Innlent „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Innlent Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Innlent Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Innlent Sama rúta olli skemmdum á bannsvæði í hádeginu Innlent Fleiri fréttir Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Svona var blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Óljóst með skólahald eftir helgi Trans fólk veigri sér við ferðalögum til Bandaríkjanna Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Jöklar jarðar rýrna mun hraðar en áður vegna aukinnar hlýnunar Niðurstöðu beðið í Karphúsinu Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Verkföll hafin í sex skólum Sjá meira
Búið að birta Bubba og Rúv stefnu Steinar Berg Ísleifsson hefur höfðað meiðyrðamál vegna ummæla Bubba í þættinum Popp- og rokksaga Íslands. 14. september 2016 13:47
Fyrrum gítarleikari Utangarðsmanna: „Ég hef ekkert slæmt að segja um Steinar Berg“ Danny Pollock ber Steinari Berg vel söguna. 18. ágúst 2016 12:33
Steinar Berg lagði Bubba og RÚV í meiðyrðamáli Þurfa að greiða Steinari 250 þúsund krónur í miskabætur. 26. júlí 2018 13:16