Guðbjörg Jóna: Var nóg að komast í úrslit og ætlaði bara að njóta Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 10. júlí 2018 19:00
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir varð um helgina Evrópumeistari 18 ára og yngri í 100 metra hlaupi. Hún náði einnig í bronsverðlaun í 200 metra hlaupi. „Þegar ég fór í 100 metra hlaupið þá var ég skælbrosandi þegar ég fór í blokkina því ég ætlaði bara að njóta þess að vera þarna. Að komast í úrslit, það var bara nóg út af fyrir sig,“ sagði Guðbjörg Jóna við Júlíönu Þóru Hálfdánardóttur í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. „Ég fann þegar ég kom í mark að ég lenti á palli og var bara geðveikt ánægð. Svo var kamerumaðurinn alltaf á mér og ég hugsaði, vann ég? Svo kom hann og sagði mér að ég hafði unnið og ég var svo hissa að ég fór bara að gráta.“ Guðbjörg Jóna á framtíðina fyrir sér í spretthlaupum en hún segir þennan titil þó hafa litla þýðingu haldi hún ekki áfram að æfa, unglingatitlar þýði ekki mikið á fullorðinsárum. „Þetta breytir engu þannig séð, maður þarf að halda áfram. Það eru margir sem hætta á þessum aldri. Það skiptir engu máli þótt maður hafi orðið Evrópumeistari 18 ára þegar þú ert kominn á fullorðinsmót, en þetta er gaman núna,“ sagði Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir. Viðtal Júlíönu við Guðbjörgu má sjá í heild sinni í sjónvarpsglugganum í fréttinni.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira