Lífið

Leiðarlok á ferli Friðriks Dórs: Flytur úr landi til að læra innanhússhönnun

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Friðrik Dór ætlar að flýja land á næsta ári.
Friðrik Dór ætlar að flýja land á næsta ári. Vísir/Eyþór
Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson stendur á tímamótum en hann fagnar þrítugsafmæli sínu í október með stórtónleikum undir yfirskriftinni „Í síðasta skipti“. Tónleikarnir marka „ákveðin leiðarlok“ á ferli Friðriks sem hyggur á nám í innanhússhönnun á Ítalíu á næsta ári.

Er Frikki Dór að hætta?

Friðrik ræddi tónleikana og framtíðaráform sín í þættinum Í bítinu á Bylgjunni í morgun. Margir ráku upp stór augu þegar tónleikaboð tóku að berast á samfélagsmiðlum, þar eð í lýsingu á viðburðunum segir að tónleikarnir „endurspegli ákveðin leiðarlok á ferli Friðriks“. Þá er nafn tónleikanna „Í síðasta skipti“, eins og áður sagði, og því hafa margir velt því fyrir sér hvort Friðrik hyggist leggja hljóðnemann á hilluna fyrir fullt og allt.

„Þetta er vísun í lagið auðvitað,“ segir Friðrik, inntur eftir því hvað yfirskrift tónleikanna tákni. Þá sé vissulega um að ræða ákveðin tímamót á ferlinum.

„Þetta er í síðasta skipti sem ég held mína eigin tónleika í einhvern tíma en ég verð áfram í þessum verkefnum sem maður er í dagsdaglega í þessu blessaða starfi.“



Gamall draumur að læra innanhússhönnun

Þá verður einhver bið á næstu tónleikum þar sem Friðrik ætlar að láta gamlan draum rætast og setjast aftur á skólabekk á næsta ári.

„En eins og ég segi, tónleikarnir verða þeir síðustu í bili vegna þess að 2019 stefni ég á að fara í nám erlendis,“ segir Friðrik og bætir jafnframt við að innanhússhönnun hafi orðið fyrir valinu.

„Þegar ég var yngri þá var þetta alltaf stefnan að fara í innanhússhönnun en það frestaðist af hinum ýmsu ástæðum og aðallega út af tónlistinni. Svo fór ég í viðskiptafræði og kláraði hana, það var aðallega fyrir mömmu mína til að vera með einhverja gráðu.“



Tvennir tónleikar í Kaplakrika

Að sögn Friðriks hefur hann og fjölskylduna lengi langað að búa erlendis. Þá eru allar líkur á að ítölsku borgirnar Mílanó eða Flórens verði fyrir valinu, enda hefur Ítalía löngum verið talin mekka hönnunar í heiminum.

Friðrik ítrekar þó að ekki sé um að ræða formleg lok á tónlistarferlinum. „Ég er ekkert búinn að renna fyrir munninn á mér.“

Tvennir tónleikar undir yfirskriftinni „Friðrik Dór – Í síðasta skipti“ verða haldnir þann 6. október næstkomandi í Kaplakrika í Hafnarfirði en Friðrik verður þrítugur daginn eftir. Fyrri tónleikarnir eru fjölskyldutónleikar og hefjast klukkan 15 og þá verður blásið til kvöldtónleika klukkan 21. Miðasala á tónleikana hefst á morgun, 12. júlí.

Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Friðrik Dór í heild sinni.

Og hér að neðan má hlusta á lagið Leiðarlok af fyrstu plötu Friðriks Dórs, Allt sem þú átt, sem verður að teljast viðeigandi á þessu stigi málsins.


Tengdar fréttir

Kviknaði í Frikka Dór í beinni

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps stóð uppi sem sigurvegari í sjónvarpsþættinum Kórar Íslands í gær. Lokaþátturinn var sýndur á Stöð 2 og kórinn hlaut fjórar milljónir króna í sigurlaun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.