Lífið

Valdimar kíkti á rúntinn og þandi raddböndin með Robyn

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Valdimar þykir fátt jafnskemmtilegt og að setja á gott lag á rúntinum og öskursyngja með því í góðra vina hópi, að því er söngvarinn greindi frá á Twitter fyrir skömmu.
Valdimar þykir fátt jafnskemmtilegt og að setja á gott lag á rúntinum og öskursyngja með því í góðra vina hópi, að því er söngvarinn greindi frá á Twitter fyrir skömmu. Skjáskot/FACEBOOK
Söngvarinn Valdimar þenur raddböndin með lagi sænsku söngkonunnar Robyn, Dancing On My Own, í nýju myndbandi sem birt var í dag.

Í myndbandinu, sem er úr smiðju vefritsins SKE, ræðir Valdimar nýja plötu sem væntanleg er í haust og snertir einnig á andúð sinni á geitungum. Þá lýsir hann því hvernig amma hans í Keflavík hatar Rocky Horror-bartana sem Valdimar hefur skartað undanfarið auk þess sem farið er ítarlega ofan í saumana á ferli bandaríska rapparans Biggie Smalls.

Valdimar er einn þekktasti söngvari landsins en lífið leikur greinilega við hann þessa dagana. Vísir greindi frá því fyrr í mánuðinum að söngvarinn væri kominn á fast með Önnu Björgu Sigurjónsdóttur en þau opinberuðu samband sitt nýlega á Facebook.

Myndband SKE má sjá hér að neðan. Valdimar hefur upp raust sína á mínútu 6:35.


Tengdar fréttir

Valdimar kominn á fast

Söngvarinn ástsæli Valdimar Guðmundsson og Anna Björk Sigurjónsdóttir eru nýtt par.

Rocky Horror heldur áfram í haust

Þrátt fyrir að þurft hafi að fella niður sýningu vegna veikinda berast gleðifréttir af Rocky Horror í Borgarleikhúsinu. Sýningin mun halda áfram í haust og heldur Páll Óskar áfram gleðinni sem Frank-N-Furter eins og hann hefur gert með bravör undanfarnar 50 sýningar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.