Banvæn sprenging á fundi nýs forsætisráðherra Eþíópíu Kjartan Kjartansson skrifar 23. júní 2018 08:53 Frá útifundinum á Meskel-torgi áður en sprengjan sprakk. Vísir/Getty
Abiy Ahmed, nýkjörinn forsætisráðherra Eþíópíu, segir að nokkrir hafi látið lífið í sprengingu á útifundi hans á torgi í höfuðborginni Addis Ababa í dag. Talið er að handsprengju hafi verið kastað inn í mannfjöldann. Sprengjan sprakk nokkrum mínútum eftir að Abiy lauk máli sínu á baráttufundinum sem haldinn var á Meskel-torgi, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Abiy tók við völdum í apríl og hefur síðan ráðist í ýmis konar umbætur og slakað á ritskoðun stjórnvalda. Hann vakti einnig furðu margra landa sinna þegar hann lýsti því yfir fyrr í þessum mánuði að hann væri reiðubúinn að fullgilda friðarsamning við Erítreumenn sem skrifað var undir árið 2000. Samningnum var ætlað að benda enda á tveggja ára stríð landanna tveggja. Spenna hefur ríkt á milli ríkjanna með tilheyrandi hernaðaruppbyggingu. Abiy er fyrsti leiðtogi Eþíópíu sem kemur úr röðum Oromo-þjóðflokksins. Oromo-fólk hefur mótmælt ríkisstjórn landsins undanfarin þrjú ár og hafa hundruð manna fallið, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Það kvartar undan pólitískri, efnahagslegri og menningarlegri útskúfun þrátt fyrir að það sé fjölmennasta þjóðarbrot landsins.
Eþíópía Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira