Stórkostlegt mark Katrínar gat ekki bjargað KR Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 25. júní 2018 21:07 Katrín Ómarsdóttir átti frábært mark fyrir KR í kvöld vísir/getty
Stjarnan vann stórsigur á KR í Vesturbænum og Selfoss vann HK/Víking í nýliðaslag í Kórnum þegar 7. umferð Pepsi deildar kvenna lauk í kvöld. Katrín Ómarsdóttir skoraði eitt af mörkum ársins á 51. mínútu í Vesturbænum þegar hún fékk sendingu niðri með jörðinni, lyfti boltanum upp í loftið í fyrstu snertingu og tók bakfallsspyrnu beint í netið. Markið var þó frekar þýðingarlaust hvað úrslit leiksins varðar, Stjörnukonur höfðu skorað þrjú mörk í fyrri hálfleik og voru 3-0 yfir þegar markið kom. Katrín Ásbjörnsdóttir bætti svo við fjórða marki Stjörnunnar á 64. mínútu. Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir náði í annað sárabótamark fyrir KR í uppbótartíma en það gerði lítið og öruggur sigur Stjörnunnar. Í Kópavogi var nýliðaslagurinn frekar rólegur þar til á 80. mínútu þegar Selfyssingar gerðu tvö mörk á jafn mörgum mínútu. Magdalena Anna Reimus kom Selfyssingum yfir og lagði svo upp mark fyrir Kristrúnu Rut Anotnsdóttur. Varamaðurinn Alexis Kiehl bætti þriðja marki Selfoss við á 90. mínútu og gulltryggði sterkan útisigur. Selfoss fór með sigrinum upp fyrir Grindavík í sjötta sæti deildarinnar. HK/Víkingur er í 8. sæti, stigi á undan KR í fallsæti. Stjarnan er enn í fjórða sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Val og Breiðabliki í öðru og þriðja sæti. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira