Íslenski hópurinn tilbúinn í lykilleik á morgun Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 28. júní 2018 20:30
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta kemst áfram í aðra umferð undankeppni HM 2019 með sigri á Búlgaríu ytra á morgun. Þegar öll lið eiga eftir að leika tvo leiki í undanriðlunum er Ísland í öðru sæti F riðils eftir glæsilega sigra á Finnum og Tékkum hér heima fyrr í vetur. Ísland og Finnland eru bæði með 6 stig, Tékkar eru á toppnum með 7 og Búlgarar í fjórða sæti með fimm stig. Efstu þrjú liðin fara áfram í aðra umferð undankeppninnar. Ísland mun fara áfram í aðra umferð með sigri á Búlgörum. Ef leikurinn tapast verður Ísland að vinna Finna á mánudag og treysta því að Tékkarnir tapi ekki báðum leikjum sínum. Miklar breytingar hafa verið á leikmannahópnum undanfarið og munu yngri leikmenn fá tækifæri til þess að stíga upp. „Nýju leikmennirnir í hópnum hafa verið að spila vel og náð vel saman með hinum leikmönnunum. Hópurinn hefur náð mjög vel saman og við verðum tilbúnir á föstudag,“ sagði Craig Pedersen landsliðsþjálfari áður en liðið hélt út til Búlgaríu. Önnur umferð undankeppninnar er milliriðill með efstu þremur liðunum úr E og F riðli. Upp úr milliriðlinum fara þrjú efstu liðin á HM. Í E riðli er Frakkland nú þegar komið áfram en Rússar, Bosníumenn og Belgar berjast um hin sætin tvö. Einn af þeim nýju leikmönnum sem eru að koma inn í íslenska hópinn er Jón Axel Guðmundsson sem átti frábært tímabil með Davidson í bandaríska háskólaboltanum í vetur. „Að koma hér og fá tækifærið að spila með þessum strákum og sýna hvað maður getur hér á Íslandi er skemmtilegt,“ sagði Jón Axel. Leikur Íslands og Búlgaríu hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma á morgun, föstudag.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Býðst til þess að gefa þjófnum gullið í arf Sport Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira