1 dagur í HM: Þegar danska dýnamítið var að fara vinna HM en lenti svo í spænska gamminum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júní 2018 12:00 Preben Elkjær Larsen og Michael Laudrup fagna hér marki á HM í Mexíkó 1986. Vísir/Getty
Fyrir 32 árum voru Danir í sömu stöðu og íslenska karlalandsliðið á HM í Rússlandi. Fyrsta heimsmeistarakeppni Dana var HM í Mexíkó 1986 og líkt og við Íslendingar þá hafði danska landsliðið slegið í gegn á Evrópumóti í Frakklandi tveimur árum fyrr. Í þá daga þegar engan Íslending dreymdi einu sinni um að sjá íslenska landsliðið keppa á HM þá voru mjög margir sem héldu með þessu stórskemmtilega landsliði Dana á gullaldarárum þess. Danir voru með léttleikandi lið sem skoraði mörk og skemmti litríkum stuðningsmönnum sínum. Heimsmeistarakeppnin í Mexíkó var mikið ævintýri fyrir dönsku þjóðina enda gekk frábærlega framan af móti eða allt þar til að liðið mætti sigurreift í sextán liða úrslitin.Preben Elkjær Larsen raðaði inn mörkum í byrjun HM.Vísir/GettyÞað er mjög merkilegt hvað margt er sameiginlegt með danska landsliðinu á níunda áratugnum og íslenska liðinu í dag. Líkt og hjá Íslandi þá komst danska liðið á fyrsta stórmótið á EM í Frakklandi eftir að hafa rétt misst af HM tveimur árum fyrr. Danir náðu frábærum árangri á EM 1984 og stuðningsmenn liðsins slógu í gegn. Tveimur árum síðar var komið að fyrsta heimsmeistaramóti dönsku þjóðarinnar. Danska landsliðið hafði valdið miklum vonbrigðum á sjöunda og áttunda áratugnum þrátt fyrir að eiga margra frambærilega leikmenn. Hver man ekki eftir liðinu sem vann Ísland 14-2 í Parken. Danska liðið komst reyndar í úrslitakeppni EM 1964 en það var eina stórmót Dana þegar liðið náði loksins að tryggja sig inn á EM í Frakklandi 1984. Upphafið af viðsnúningnum var eflaust þegar Þjóðverjinn Sepp Piontek var ráðinn þjálfara liðsins í júlí 1979 og kom með miklu meiri aga inn í liðið. Danska kæruleysið var ekki lengur allsráðandi.Michael LaudrupVísir/GettyDanska landsliðið var nálægt því að komast á HM 1982 á Spáni þar sem liðið vann meðal annars eftirminnilega 3-1 sigur á verðandi heimsmeisturum Ítala en það vantaði aðeins upp á og dönsku strákarnir sátu eftir í riðlinum. Danir komust hinsvegar á EM tveimur árum síðar þar sem þeir skildu Englendinga eftir í undankeppninni. Danska liðið fékk viðurnefnið danska dýnamítið eftir frábæra frammistöðu sína á EM 1984 þar sem liðið fór alla leið í undanúrslit þar sem liðið tapaði í vítakeppni á móti Spáni. Reynslunni ríkari þá mættu dönsku landsliðsmennirnir með bullandi sjálfstraust inn á HM í Mexíkó. Það hafði gengið vel hjá leikmönnunum með félagsliðum sínum á tímabilinu en í liðinu voru meðal annars leikmenn sem höfðu orðið enskir, ítalskir, vestur-þýskir, hollenskir og belgískir meistarar tímabilið 1985 til 1986.Vísir/GettyDönsku áhorfendurnir stálu ekki síður senunni eins og leikmennirnir því „Roligans“ eins og Danir fóru að kalla sig 1985 mættu til leiks með gleði og söngva að vopni sem var ferskur blær um áhorfendastúkur fótboltans sem á þessum árum glímdu oft við ólæti og slagsmál stuðningsmanna. Danir höfðu verið valdir bestu stuðningsmennirnir á EM 1984 og höfðu unnið hug og hjörtu heimsins með litríkri og skemmtilegri framkomu sinni. Liðið sjálft var líka frábært sem það sýndi i riðlakeppninni á HM í Mexíkó. Með framherjann Preben Elkjær Larsen og hinn magnaða Michael Laudrup í stuði þá áttu Skotland, Úrúgvæ og Vestur-Þýskaland engin svör.Vísir/GettyDanir unnu alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni og markatalan var 9-1 eftir fyrstu þrjá leikina. Preben Elkjær Larsen skoraði þrennu á móti Úrúgvæ og var kominn með fjögur mörk í keppninni. Menn voru jafnvel farnir að sjá heimsmeistaratitil í hillingum þegar kom að leik Dana á móti Spáni í sextán liða úrslitunum. Leikurinn byrjaði líka vel þegar Jesper Olsen kom Dönum í 1-0 með marki úr vítaspyrnu en skelfileg mistök Olsen færðu Spánverjum jöfnunarmark á silfurfati. Markið skoraði Emilio Butragueno betur þekktur sem gammurinn vegna þess hversu vel hann nýtti sér mistök mótherjanna. Leikur danska liðsins hrundi síðan í seinni hálfleik. Butragueno skoraði þar þrjú mörk og því fjögur alls og fimmta markið skoraði síðan Andoni Goikoetxea. HM-ævintýri Dana endaði því snögglega og þeir voru á heimleið. Á EM tveimur árum seinna töpuðust allir þrír leikirnir og danska liðinu mistókst síðan að komast á HM á Ítalíu 1990. Það hafði sloknað á danska dýnamítinu.Vísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/Getty
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Sjá meira