Alfreð var að skora í þriðja landsleiknum í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júní 2018 13:32 Alfreð Finnbogason fagnar marki sínu. Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason skoraði fyrsta mark Íslands á HM þegar hann jafnaði metin á móti Argentínu á Spartak-leikvanginum í Moskvu. Alfreð þefaði upp marktækifærið og sendi boltann í markið við gríðarlegan fögnuð íslensku stuðningsmannanna. Íslenska landsliðið var þá búið að vera undir í fjórar mínútur þegar Alfreð skoraði á 23. mínútu. Þetta var fjórtánda mark Alfreðs fyrir íslenska landsliðið en hann var líka að skora í þriðja landsleiknum í röð. Alfreð skoraði líka í tveimur síðustu undirbúningsleikjum Íslands á móti Noregi og Gana. Alfreð þakkaði fyrir traustið að fá að byrja leikinn en þetta er í fyrsta sinn sem hann byrjar inn leik á stórmóti. Alfreð var á bekknum í öllum leikjum Íslands á EM í Frakklandi fyrir utan þennan eina þar sem hann var í leikbanni. Alfreð opnaði einnig markareikning íslenska landsliðsins í undankeppninni en hann skoraði mark Íslands í fyrsta leiknum á móti Úkraínu. Alfreð skoraði alls þrjú mörk í undankeppninni.Alfreð sendir boltann í mark Argentínumanna.Vísir/GettyBoltinn komið í markið.Vísir/GettyAlfreð fagnar.Vísir/Getty
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Fótbolti Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Fleiri fréttir Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Breiðablik - Csíkszereda | Blikar stefna aftur á Evrópubikarinn Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ Sjá meira