Skoðun

Hundahald í Reykjavík

Sif Jónsdóttir og Anna Dís Arnardóttir skrifar
Hundahald í Reykjavík er leyfilegt og er hundum að fjölga á höfuðborgarsvæðinu. Fólki sem er annt um ferfættlingana gleðst yfir því og njóta samvista við dýrin heima og að heiman.

Hundar eru félagsskapur og tryggur vinur fyrir mannfólkið og á hundasamfélagið eftir að stækka í borginni. Því er nauðsynlegt að vera framsýn og hafa aðlaðandi svæði í borginni þar sem hundaeigendur geta komið saman með hundana sína.

Hundar eru félagsverur en misjafnlega mikið eins og við mannfólkið og þurfa svæðin innan borgarmarkanna að vera afgirt og fallega hönnuð, með aðgengi að vatni og bekki til að sitja á. Svæðin sem eru fyrir hunda í dag eru óskemmtileg, hrá og óaðlaðandi, einnig eru þau oft biluð, jafnvel hliðin ekki á hjörum og því ekki hægt að sleppa hundunum innan svæðisins.

Höfuðborgarlistinn vill mannlega og fjölskylduvæna borg og hundar eru hluti af fjölskyldunni. Til að halda vel utan um þá þróun sem er og verður á hundahaldi borgarbúa er viljum við skrá eignahald í miðlægan gagnagrunn, lækka nýskráningargjöld til að fá eigendur til að skrá hundana sína og sæmræma gjaldtöku við önnur sveitafélög. Einnig þarf að endurskoða árgjaldið og tryggingar. Hundarnir geta slasað sig og orðið veikir, þá er dýrt að vera með ótryggt dýr. Mikilvægt er að eigendur kynni sér allt utanumhald og þann árlega kostnað sem hundahald er, því vel undirbúinn hundaeigandi er góður eigandi. Með þessum aðgerðum er verið að einfalda kerfið og auka gegnsæi.

Við hjá Höfuðborgarlistanum viljum samvinnu með hverfum borgarinnar og hundaeigendum um staðsetningu hundasvæða innan hverfa. Hafa þarf virkt eftirlit með svæðunum og hafa samband við borgina um viðhald og viðgerðir. Mikilvægt er að sinna þessari þjónustu vel og þannig vera virkur mótaðili eigenda dýranna.

Kvörtunum vegna lausagöngu hunda hefur fækkað með hverju árinu sem sýnir samfélagslega ábyrgð eigenda. Einnig hefur gefist vel að nota fésbókina til að miðla upplýsingum og til að lýsa eftir týndum hundum en hundaeftirlitsmaður er starfandi 8.30 -19.00 virka daga, þannig að fólk hefur lent í vandræðum um kvöld og helgar og þá nýtt sér samfélagsmiðla.

Bent hefur verið á að hundaeftirlitsmenn eru nánast óþarfir og ætti helst að leggja þetta starf niður þar sem samfélagsmiðlar hafa nánast tekið við starfinu. Greiða þarf út háa sekt ef hundaeftirlitsmenn grípa hundinn en árið 2016 voru 62 hundar gripnir.

Höfuðborgarlistinn vill ábyrga umgjörð um ferfættlinga borgarinnar og óskar eftir samvinnu þeirra sem að koma að þessum málaflokki.



Höfundar skipa 2. og 38. sæti á lista Höfuðborgarlistans.




Skoðun

Sjá meira


×