Forsætisráðherra tilnefndur til bráðabirgða á Ítalíu Kjartan Kjartansson skrifar 28. maí 2018 17:12 Cottarelli segist ætla að boða til nýrra kosninga snemma á næsta ári. Það gæti gerst fyrr ef þingið hafnar aðgerðaáætlun hans í sumar. Vísir/EPA
Sergio Mattarella, forseti Ítalíu, hefur beðið Carlo Cottarelli, fyrrverandi hagfræðing Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, um að leiða starfsstjórn til bráðabirgða. Stjórnarmyndun hægripopúlistaflokkar fór út um þúfur í gær þegar forsetinn hafnaði tilnefningu þeirra til embættis fjármálaráðherra. Cottarelli segist ætla að boða til kosninga snemma á næsta ári. Að sögn breska ríkisútvarpsins BBC er hann þekktur sem „Herra Skæri“ á Ítalíu vegna niðurskurðar á opinberum útgjöldum sem hann mælti fyrir um. Ekki verið tekist að mynda ríkisstjórn á Ítalíu eftir þingkosningar í mars sem skiluðu ekki afgerandi niðurstöðu. Fimm stjörnu hreyfingin og Bandalagið reyndu að mynda ríkisstjórn en þeim tilraunum lauk þegar Mattarella hafnaði vali þeirra á fjármálaráðherra í gær. Leiðtogar flokkanna brugðust ókvæða við ákvörðun forsetans sem er fordæmalaus í síðari tíma sögu Ítalíu. Krafðist Luigi Di Maio, leiðtogi Fimm stjörnu hreyfingarinnar, þess að Mattarella yrði ákærður af þinginu. Cottarelli segist ætla að leggja fram áætlun fyrir þingið, þar á meðal nýtt fjárlagafrumvarp. Fáist sú áætlun ekki samþykkt segir hann að starfsstjórn hans segi af sér. Þá yrði kosið eftir ágúst.
Tengdar fréttir Stjórnarmyndun popúlista á Ítalíu farin út um þúfur Forseti Ítalíu hafnaði tilnefningu umdeilds evróskeptíkers í embætti fjármálaráðherra. 27. maí 2018 22:41 Menntun Conte véfengd Um leið og Fimm stjörnu hreyfingin og Bandalagið, popúlistaflokkarnir sem náð hafa samkomulagi um ríkisstjórnarmyndun á Ítalíu, tilkynntu að þeir vildu gera lítt þekkta lögfræðinginn Giuseppe Conte að forsætisráðherra voru stór spurningarmerki sett við menntun Conte. 23. maí 2018 06:00 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira
Stjórnarmyndun popúlista á Ítalíu farin út um þúfur Forseti Ítalíu hafnaði tilnefningu umdeilds evróskeptíkers í embætti fjármálaráðherra. 27. maí 2018 22:41
Menntun Conte véfengd Um leið og Fimm stjörnu hreyfingin og Bandalagið, popúlistaflokkarnir sem náð hafa samkomulagi um ríkisstjórnarmyndun á Ítalíu, tilkynntu að þeir vildu gera lítt þekkta lögfræðinginn Giuseppe Conte að forsætisráðherra voru stór spurningarmerki sett við menntun Conte. 23. maí 2018 06:00