Hef lært margt á stuttum tíma og á eftir að læra heilan helling Kristinn Páll Teitsson. skrifar 11. maí 2018 10:45 Guðrún Brá Björgvinsdóttir. vísir/gva
Golf Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili keppir þessa dagana á LETA-mótaröðinni, þeirri næststerkustu í Evrópu en hún mun ásamt Valdísi Þóru Jónsdóttur, GL, reyna við úrtökumótið fyrir Opna bandaríska meistaramótið á mánudaginn. Guðrún sem lék með Fresno State háskólanum í bandaríska háskólagolfinu gerðist atvinnukylfingur í vetur og er þriðji íslenski kvenkylfingurinn sem gerist atvinnukylfingur á síðustu fimm árum. Var hún valin í Evrópuúrval áhugakylfinga stuttu áður en hún gerðist atvinnukylfingur og endaði í 4. sæti á Evrópumóti áhugakylfinga í fyrra. Á hún ekki langt að sækja golfhæfileikana en pabbi hennar, Björgvin Sigurbergsson, er fjórfaldur Íslandsmeistari í golfi. Guðrún, sem er ríkjandi Íslandsmeistari í holukeppni, komst í gegnum niðurskurðinn í fyrsta sinn um síðustu helgi í Sviss en henni fannst gott að ná að brjóta ísinn þar á öðru móti sínu á mótaröðinni. „Þetta hefur gengið bara nokkuð vel hingað til, þetta er skemmtilegt og öðruvísi verkefni en ég hef lært heilmargt á þessum fáu vikum og ég á enn eftir að læra heilan helling,“ segir Guðrún um fyrstu vikurnar sem atvinnukylfingur. „Markmiðið er auðvitað alltaf að ná í gegnum niðurskurðinn og ég spilaði heilt yfir bara nokkuð vel þótt að það sé margt sem ég hefði geta gert betur. Nú er ísinn brotinn og vonandi heldur þetta áfram. Ég er búin að vera að slá vel undanfarnar vikur en það munar um hvert högg í lok móts.“ Guðrún ræddi við Valdísi í aðdraganda þess að tímabilið byrjaði en þær léku saman á móti á dögunum og eru báðar að fara í úrtökumót fyrir eitt af fimm risamótum ársins eftir helgina. „Við vorum báðar að spila á fyrsta mótinu mínu í Frakklandi og það hjálpaði heilmikið að vera með henni, hún vissi nákvæmlega hvernig allt saman gekk og það var gott að hafa hana,“ segir Guðrún sem segir hugarfarið breytt sem atvinnukylfingur. „Ég er að spila golf eins og ég hef verið að gera síðustu ár en ég er að spila fyrir sjálfa mig og með því kemur meiri pressa. Þetta eru hlutir sem maður þarf að læra og það sem fylgir því að vera atvinnukylfingur.“ Hún var afar spennt fyrir því að keppa í úrtökumóti með möguleika á að komast á fyrsta risamótið á ferlinum en það gæti farið svo að Ísland ætti þrjá kylfinga á mótinu, Valdís og Guðrún gera atlögu á úrtökumótinu en Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður meðal kylfinga. „Fyrst og fremst er ég spennt að eiga þennan möguleika. Þetta verða tveir hringir á einum degi og maður verður bara að gefa í og sjá hvað gerist. Ég lék oft tvo hringi samdægurs í skólanum svo það ætti ekki að trufla mig en þetta verður vissulega langur dagur og maður má ekki gleyma sér við að fylgjast með því hvað aðrir eru að gera,“ sagði Guðrún og bætti við: „Það yrði frábært að komast strax á stórmót, þetta er búið að vera draumur manns í langan tíma.“
Golf Mest lesið Uppgjörið: Lech Poznan - Breiðablik 7-1 | Afhroð í Póllandi Fótbolti Enskar í úrslit eftir dramatík Fótbolti Uppbótartíminn: „Þetta tók níu sekúndur“ Íslenski boltinn „Við viljum meira“ Fótbolti KR í markmannsleit eftir meiðsli Íslenski boltinn Palace áfrýjar og vill spila í Evrópudeildinni Enski boltinn Mætti með bikarinn á frumsýningu Happy Gilmore Golf Rakarastofa og sjónvarp fyrir alla í flottasta búningsklefa heims Sport Hrósuðu Túfa í hástert: „Á einhvern hátt heldur maður með honum“ Fótbolti Borgarstjórinn forðast að ræða hótanir Trumps Sport Fleiri fréttir Mætti með bikarinn á frumsýningu Happy Gilmore Líkja yfirburðum Schefflers við Tiger upp á sitt besta Vallarmet féllu á frábærum Korpubikar „Heppinn að fá að lifa drauminn“ Scheffler tryggði sér sinn fjórða risatitil Íslenskur dómari í næst síðasta ráshópnum á The Open Scheffler með örugga forystu fyrir lokadaginn Hvítskeggjaði kylfusveinninn stal senunni á Opna breska Vélmennið leiðir Opna breska Reyndi allt til að koma kúlunni niður Veiðimaðurinn leiðir á Opna breska Tvíburar jafnir eftir fyrsta dag á Opna breska Munkur slær í gegn á Opna breska Fimm jafnir á toppnum eftir fyrsta hring „Það hafa allir runnið í gegnum þessa lokunarpósta án vandræða“ Dani og Kínverji leiða á Opna breska Endurnýja kynnin: „Stórar skoðanir en ekki endilega góðar skoðanir“ Dæmdur ofbeldismaður keppir á Opna breska í ár Grænt ljós á golfmótið þrátt fyrir gos Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Segist hafa farið 47 sinnum holu í höggi á ferlinum „Nýtti reynsluna úr vindinum heima til að halda þolinmæði“ Ragnhildur fyrst Íslendinga til að vinna LET Access mót Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golflandsliðið í öðru sæti eftir fyrsta hring Ísland í öðru sæti eftir fyrsta keppnisdag á Evrópumótinu Tryggði sig inn á Opna breska risamótið með mögnuðum erni Sjá meira