Vorspá Siggu Kling – Sporðdrekinn: Nýttu þér aðstæður og kraftinn þinn 4. maí 2018 09:00
Elsku Sporðdrekinn minn, það er nýbúið að vera fullt tungl í þínu merki og hraðinn í lífi þínu getur jafnast á við byssuskot. Þetta skapar þér velgengni, en mjög trúlega hafa verið erfiðleikar að undanförnu og það er alveg öruggt að á eftir myrkrinu kemur sólarupprás. Það er svo mikilvægt fyrir þig að skilja að það að skipta um umhverfi gefur þér mátt, hvort sem er í vinnu, skóla eða hverju sem þú ert að gera. Þú ert í essinu þínu þegar þú ert í action en daprari manneskju er ekki hægt að finna ef þér finnst ekkert hafa gerst undanfarin ár, það er bara vegna þess að þú ert ekki í tengingu við sjálfan þig. Það er svo mikilvægt þú haldir upp á allt sem þú getur fagnað, hvaða nafni sem það nú nefnist. Núna er akkúrat tíminn til að henda sér út í strauminn eða djúpu laugina og trúa því að allt fari vel því allt byggist upp á trú og það er svo mikilvægt fyrir þig að halda ekki ræður heldur búa til show. Þess vegna er Ísland komið á HM því allt byggist á að trúa, en þegar þú hefur ekki trú á því að þú komist ekki uppúr hjólförunum og allt það sama sé að gerast er það versta sem þú gerir er að vorkenna þér og það er líka ömurlegt að senda öðrum vorkunn. Það er samt svo magnað að það þarf oft að gerast eitthvað ömurlegt til að skilja að mátturinn er í þínum eigin höndum. Þegar þú lærir að þakka fyrir það sem hefur gerst í lífi þínu bæði vont og gott þá verðurðu frjáls. Og nákvæmlega núna í þessum sérkennilega krafti sem umlykur þig skaltu taka þá ákvörðum um að þú sért svo sterkur að EKKERT muni stoppa þig. Þetta er svo sannarlega tíminn þinn svo nýttu þér aðstæður og kraftinn þinn til að endurheimta það sem þú þráir, því þitt er lífið, mátturinn og dýrðin. Þú þolir alls ekki yfirborðsleg kynni og ef þú ert á lausu geturðu leyft þér að njóta, þó það sé bara einnar nætur gaman. Setningin þín er: Þú hefur ástríðuna og kraftinn og vorið er þittFrægir Sporðdrekar: Birkir Már Sævarsson landsliðsmaður, Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari, Björk, Indira Ghandi, Karl bretaprins, Hillary Clinton, Leonardo DiCaprio, Magnús Scheving, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Guðný Hrefna Sverrisdóttir, flugfreyja og gourmé kokkur, Hörður Ágústsson Macland snillingur.Indira Gandhi, Guðrún Ásmundsdóttir og Calvin Klein.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Lífið Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Lífið Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Bíó og sjónvarp 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Bíó og sjónvarp Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Fleiri fréttir Bumbubað 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Sjá meira