Lífið

Ari Ólafs og Saara Aalto fóru á kostum í London

Stefán Árni Pálsson skrifar
Saara og Ari saman á sviðinu.
Saara og Ari saman á sviðinu.
Eurovisionfarinn Ari Ólafsson kom fram með hinni finnsku Saara Aaalto á skemmtistaðnum Under the Bridge í London í gærkvöldi.

Saara Aalto kemur fram fyrir Finnlands hönd í keppninni í Lissabon í byrjun maí og flytur hún lagið Monster á fyrra undanúrslitakvöldinu.

Ari Ólafsson kemur einnig fram þetta kvöld, en hann stígur á annar á sviðið og flytur lagið Our Choice.

Saman tóku þau lagið Time To Say Goodbye, lag sem þau Andrea Bocelli og Sarah Brigthman gerðu vinsælt á sínum tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.