Eyþór í klemmu vegna kosningaloforða Jakob Bjarnar skrifar 16. apríl 2018 13:59 Sótt er að Eyþóri úr öllum áttum vegna loforðs Sjálfstæðisflokksins um að fella einfaldlega niður fasteignagjöld á sjötuga og eldri. visir/ernir
Kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins í borginni, þá hvað varðar það að vilja fella niður fasteignagjöld á þá sem eru sjötugir og eldri, ætla ekki aðeins að reynast umdeild, heldur er fullyrt að þau standist hreinlega ekki lög.Vísir greindi frá því nú í morgun að sumir telja hreinlega að um sé að ræða það að hugmyndirnar séu sérhannaðar fyrir hina ríku. Eyþór Arnalds, leiðtogi Sjálfstæðismanna í borginni, hafnar því.Líf segir loforðin innantóm Líf Magneudóttir, sem leiðir lista Vinstri grænna í borginni og er forseti borgarstjórnar, gerir þetta kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins svo að umtalsefni í pistli sem Vísir birti nú áðan. Yfirskrift hans er „Innantóm kosningaloforð“ en þar segir meðal annars:Líf Magneudóttir segir þetta kosningaloforð ekki standast neina skoðun.„Nú er því þannig háttað sveitarfélögum ber að fara eftir lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Veita þau lög aðeins takmarkaðar heimildir til niðurfellingar fasteignagjalda. Er það ekki bara skýrt af lögunum heldur hefur ráðuneytið auk þess úrskurðað um að það er ólöglegt að fella niður fasteignagjöld óháð tekjum fólks eða eftir aldri. Með öðrum orðum er beinlínis ólöglegt að miða við tiltekinn aldur fólks í niðurfellingu fasteignagjalda.“Óheimilt að fella niður fasteignagjöld Vilhjálmur Þorsteinsson fjárfestir, fyrrverandi gjaldkeri Samfylkingarinnar bendir á það hið sama í umræðum sem um þetta eru á Facebook-vegg Gunnars Smára Egilssonar, leiðtoga Sósíalistaflokks Íslands. „Það er ekki heimilt skv. núgildandi lögum um fjármál sveitarfélaga að fella niður fasteignagjöld óháð tekjum. Heimildarákvæði laganna tekur skýrt fram að um sé að ræða ívilnun til tekjulágra.“Vilhjálmur Þorsteinsson segir að óvéfengjanlegt sé að ólöglegt sé að fella niður fasteignagjöld, eins og Sjálfstæðisflokkurinn leggur upp með.visir/arnþórVilhjálmur bendir vitnar í 4. málsgrein fimmtu greinar laga um tekjustofna sveitarfélaga hvar segir: „Heimilt er sveitarstjórn að lækka eða fella niður fasteignaskatt sem tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða. Skylt er sveitarstjórn að setja reglur um beitingu þessa ákvæðis, svo sem um tekjumörk, tekjuflokka og hvort lækkun er í formi fastrar krónutölu eða hlutfalls af fasteignaskatti.”„Einhver hefur platað Eyþór“ Eyþór segir á móti að Vestmannaeyjabær hafi gert þetta um árabil. „Við munum setja reglur um þetta eins og lög segja til um.“ Hann bendir á fundagerð úr Eyjum sem sýnir þetta. En, Eyþór er ekki þar með laus af önglinum. Vilhjálmur segir það furðu sæta ef Vestmannaeyjabær getur komist upp með slíkt þegar það gengur augljóslega bæði gegn bókstaf og anda laganna. Ívilnunin sé hugsuð fyrir tekjulága. Og Gunnar Smári bætir við að þetta sé tekjutengt í Eyjum. „Einhver hefur platað Eyþór.“Uppfært 14:50 Vísir reyndi að ná tali af Elliða Vignissyni, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum með það fyrir augum að inna hann eftir því hvernig útfærslan á þessu hafi verið úti í Eyjum og hvort áhöld hafi verið um hvort sá gerningur standist lög. Það tókst eftir að fréttin var birt og eru svör hans við þeim spurningum eftirfarandi: „Eldra fólk greiðir ekki fasteignaskatta í Vestmannaeyjum,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, þegar þetta var borið undir hann. Og spyr hvaða vitleysa þetta sé? „Þeir Vestmannaeyingar sem eru 67 ára og eldri greiða ekki fasteignaskatta af eigin heimilum og hafa ekki gert undanfarin ár. Skoðanir á þessu voru nokkuð skiptar á sínum tíma og velferðarráðuneytið óskaði eftir skýringum á því hjá Vestmannaeyjarbæ á hvaða lögum þessi undanþága væri byggð.“Gæta verði mannvirðingar allra Elliði segir að þau úti í Eyjum hafi fyrst og fremst vísað í lög um aldraða. „Auk náttúrulega laga um sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga og fleira. Hið opinbera, þar með talið sveitarfélögin, bera umtalsverða ábyrgð á málefnum aldraðra og lögin leggja sveitarfélögum á herðar ákveðnar skyldur í húsnæðismálum eldri borgara.“Elliði segir að ákvörðun Vestmannaeyjabæjar hafi á sínum tíma verið borin undir velferðarráðuneytið.Óskar P FriðrikssonElliði segir að í viðbót við þá lágmarkskröfu sem lögin geri til okkar þá beri okkur siðferðislegar skyldur til að gæta að mannvirðingu allra og þar með talið að auðvelda fólki að búa sem lengst á eigin heimilum. „Okkur fannst við ekki geta setið aðgerðarlaus hjá eftir hrun, þegar kjör eldri borgara voru skert verulega, það var ekki síst þess vegna sem þessi ákvörðun var tekin. Við starfslok lækka tekjur oftast bratt og jafnvel þótt fólk sé eignasterkt. Vegna þess að það á heimili sín þá þyngist rekstur mjög þegar tekjur lækka og þá ekki síst þegar fasteignagjöld rjúka upp eins víða hefur verið á seinustu árum. Við urðum vör við þetta og þótti slæmt ef fólk hrökklast af eigin heimilum. Bærinn hefði á seinustu árum ekki fengið neinar nýjar umkvartanir vegna þessa frá ráðuneytinu og þetta hefði reynst vel.“Eyjamenn að eldast sem og reyndar aðrir landsmenn Elliði segir að íbúar í Eyjum séu að eldast eins og annars staðar. „Fólk er að ná hærri aldri, sem er auðvitað ánægjulegt, en skapar okkur ný viðfangsefni. Eldriborgarar eru einnig síbreytilegur þjónustuhópur og hinu endanlega þjónustustigi er aldrei endanlega náð. Þannig eru eldriborgarar dagsins í dag oft við betri heilsu en áður og geta því rekið heimili sín lengur svo fremi sem til dæmis skattheimtu hins opinbera sé stillt í hóf. Þá ber einnig að hafa hugfast að þótt með þessu verði tekjur vegna fasteignagjalda lægri þá er nú dýrasta úrræðið er stofnanaþjónusta og í viðbót við hina almennu mannvirðingu þá er það hreinlega rekstrarlega hagkvæmt að hjálpa fólki að búa heima eins lengi og kostur er,“ segir Elliði sem vill standa með sínum flokksbróður í Reykjavík.Eyþór Arnalds ræddi kosningaloforð flokksins í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.
Kosningar 2018 Sveitarstjórnarkosningar Tengdar fréttir Innantóm kosningaloforð Um helgina kynnti Sjálfstæðisflokkurinn í borginni kosningaloforðin sín í aðdraganda komandi borgarstjórnakosninganna. 16. apríl 2018 12:03 Skattahugmyndir Eyþórs sagðar hannaðar fyrir hina ríku Eyþór Arnalds segist vilja gera eldri borgurum kleift að búa lengur heima hjá sér. 16. apríl 2018 11:40 Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Trump tókst að fella Massie Erlent Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Innlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Erlent Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Fleiri fréttir Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Sjá meira
Innantóm kosningaloforð Um helgina kynnti Sjálfstæðisflokkurinn í borginni kosningaloforðin sín í aðdraganda komandi borgarstjórnakosninganna. 16. apríl 2018 12:03
Skattahugmyndir Eyþórs sagðar hannaðar fyrir hina ríku Eyþór Arnalds segist vilja gera eldri borgurum kleift að búa lengur heima hjá sér. 16. apríl 2018 11:40