Ökumenn fari varlega undir Vatnajökli Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. apríl 2018 07:32 Það mun líklega blása um Jökulsárlón í kvöld. Vísir/vilhelm
Veðurstofan varar við hvassviðri undir Vatnajökli í kvöld en það mun hvessa töluvert á Suðausturlandi eftir því sem líður á daginn. Af þeim sökum er gul viðvörun í gildi fyrir suðausturhornið í kvöld og nótt, meðalvindhraðinn verður á bilinu 13 til 23 m/s og verður hvassast austan Öræfa þar sem vindhviður geta farið yfir 35 m/s. Ökumenn á Suðausturlandi eru því beðnir um að fara varlega. Annars staðar á landinu ríkir hins vegar „ákveðin og svöl“ norðanátt með éljagangi eða snjókomu á Norður- og Austurlandi, en annars er yfirleitt léttskýjað fyrir sunnan og vestan. Frostið verður á bilinu 0 til 7 stig og verður kaldast í innsveitum á Norðurlandi. Hitinn getur þó farið yfir frostmark og jafnvel náð 5 stigum syðra að deginum. Gert er ráð fyrir hægari norðanátt á morgun og él fyrir norðan og austan. Útlit fyrir fremur hæga vinda og víða bjartviðri og kalt framan af helginni, en vaxandi suðaustanátt á sunnudag, þykknar upp og hlýnar.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ fimmtudag:Norðlæg átt, 8-13 m/s, en lægir síðdegis. Dálítil él á víð og dreif, en lengst af bjartviðri á S- og V-landi. Líkur á snjókomu vestast á Breiðafirði og Vestfjörðum seint um kvöldið. Hiti kringum frostmark, en upp í 6 stiga hiti með S- ströndinni að deginum.Á föstudag:Hægir vindar og víða léttskskýjað, en lítilsháttar él NV-til. Hiti við frostmark að deginum.Á laugardag:Breytileg eða norðaustlæg átt og skýjað með köflum, en dálítil él fyrir norðan og austan. Frostlaust syðst yfir hádaginn, en annars vægt frost.Á sunnudag:Vaxandi suðaustanátt, þykknar upp og hlýnar, slydda eða rigning syðst um kvöldið.Á mánudag og þriðjudag:Útlit fyrir austanhvassviðri með rigningu, en lengst af þurrviðri nyrðra. Milt veður.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira