Spielberg er enn að ögra sjálfum sér Þórarinn Þórarinsson skrifar 5. apríl 2018 08:00 Ready Player One er nýjasta kvikmynd Steven Spielberg.
The Sugarland Express, Jaws, Raiders of the Lost Ark, Close Encounters of the Third Kind, E.T., The Color Purple, Empire of the Sun, Jurassic Park, Schindler’s List, Saving Private Ryan, A.I. Artificial Intelligence, Minority Report, Lincoln, Munich, The Terminal og The Post. Þetta eru aðeins fimmtán kvikmyndir af þeim 32 sem Steven Spielberg hefur leikstýrt á ferli sem hófst með Duel frá 1971. Mynd sem gerð var fyrir sjónvarp en reyndist svo góð að ekkert annað kom til greina en breiðtjaldið. Sem framleiðandi hefur Spielberg einnig komið að gerð mynda á borð við Flags of Our Fathers, Who Framed Roger Rabbit, Innerspace, An American Tail, The Money Pit, Back to the Future, The Goonies, Gremlins og Poltergeist. Tilkomumikil upptalning og samt er aðeins um brot úr afrekaskrá Spielbergs að ræða og ekki þyrfti nema að draga fram fjórar til fimm myndir úr þessum bunka til þess að staðfesta að Spielberg er óumdeildur heimsins magnaðasti kvikmyndaleikstjóri.Úr þrjúbíó til Auschwitz Spielberg sigraði heiminn með kristaltærri afþreyingu eins og Jaws og Raiders of the Lost Ark, fljúgandi furðuhlutadramanu Close Encounters og þeirri stórkostlegu E.T. sem heillaði heila kynslóð á níunda áratugnum og getur enn vakið barnið í hjarta hverrar manneskju sem á horfir. En Spielberg vildi meira. Hann þráði Óskarsverðlaunin og virðingu fyrir annað og meira en fullkomna afþreyingu. Fyrsta atrenna hans að inngöngu í hátimbraðar snobbhallir var The Color Purple árið 1985. Átakanleg og eftirminnileg mynd eftir samnefndri skáldsögu Alice Walker. Ekki dugði þetta til frekar en Empire of the Sun tveimur árum síðar. Stíflan brast með Schindler’s List 1993. Magnaðri sögu um illsku og manngæsku í helfararhörmungum seinni heimsstyrjaldarinnar. Myndin landaði sjö Óskarsverðlaunum, meðal annars fyrir bestu myndina og Spielberg fékk sína fyrstu styttu sem besti leikstjórinn. Okkar maður var kominn á bragðið og 1998 fékk hann Óskarsverðlaunin aftur, fyrir Saving Private Ryan, ruddalega góða og raunsæja mynd um hörmungar og hetjudáðir bandarískra hermanna í kjölfar innrásar bandamanna í Normandí. Aftur á byrjunarreit Með Ready Player One má segja að Spielberg hverfi aftur til fortíðar en í myndinni blandast saman dystópía, nöturleg framtíðarsýn, fantasía og ævintýri baðað í nostalgíu. En þrátt fyrir alla reynsluna af fantasíunni ræðst undrabarnið, sem er löngu orðið fullorðið, síður en svo á garðinn þar sem hann er lægstur. Myndina gerir Spielberg eftir samnefndri vísindaskáldsögu Ernest Cline frá 2011 sem fékk strax þann stimpil að ómögulegt væri að kvikmynda hana. Hún á sér stað árið 2045, í ömurlegum heimi þar sem freistandi er að flýja inn í sýndarveruleika sem nefnist OASIS. Þar getur hver verið það sem hann vill og gert hvað sem er. Ímyndunaraflið er eina hindrunin. Spielberg segir í viðtali við kvikmyndatímaritið Empire að Ready Player One sé ein af þremur erfiðustu myndunum sem hann hefur gert. Hinar eru Jaws og Saving Private Ryan. Jaws og Saving Private Ryan hafi reynt á hann líkamlega en með Ready Player One mætti meistarinn þeirri áskorun að „þurfa að reyna að gera eitthvað nýtt tæknilega sem hefur aldrei verið gert áður“. Þung orð þegar þau koma frá leikstjóra sem hefur svo oft gert eitthvað sem aldrei hafði verið gert áður. „Ég þurfti að læra hvernig ætti að gera mynd eins og þessa á meðan ég var að gera mynd eins og þessa.“
Birtist í Fréttablaðinu Bíó og sjónvarp Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“