Sólskin í dag en fimbulkuldi í nótt Stefán Ó. Jónsson skrifar 5. apríl 2018 07:02 Svona er staðan á hádegi í dag. Veðurstofan
Sólin mun skína glatt sunnan- og vestanlands í dag og mun hitinn þar jafnvel gægjast uppfyrir frostmarkið ef marka má spá Veðurstofunnar þennan morguninn. Þá er jafnframt útlit fyrir minnkandi norðanátt. Í norðausturfjórðungi landsins má búast við vægu frosti og éljum, en að sögn veðurfræðings verða þau smám saman strjálli og efnisminni þegar kemur fram á daginn. Það verður svo orðið hæglætisveður á mestöllu landinu í kvöld og lítið af skýjum. Við þær aðstæður nær frostið sér á strik og býst Veðurstofan við tveggja stafa frosttölum í flestum landshlutum í nótt. Hitinn verður að 5 stigum yfir daginn sunnan heiða, en vægt frost fyrir norðan og austan. Útlit er fyrir rólegt og bjart veður sunnan- og austantil á landinu á morgun. Spár gera þá ráð fyrir að dálítil lægðabóla láti á sér kræla úti fyrir Vestfjörðum. „Af hennar völdum má búast við suðvestan kalda eða jafnvel strekkingi eftir hádegi um landið norðvestanvert og dálítil él með, einnig gæti orðið vart við lítilsháttar él á Faxaflóasvæðinu,“ útskýrir veðurfræðingur. Helgin virðist ætla að verða fremur róleg í veðrinu, lítil eða engin úrkoma er í kortunum og allir landshlutar fá bjarta kafla. Áfram má þó búast við næturkulda.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ föstudag:Hæg breytileg átt, en vestan 8-13 m/s norðvestantil á landinu. Dálítil él vestanlands og einnig á Norðurlandi um kvöldið, en léttskýjað í öðrum landshlutum. Hiti að 5 stigum sunnanlands yfir daginn, annars frost 1 til 6 stig. Á laugardag:Vestlæg átt 3-8 og víða bjartviðri, en 8-13 með norðurströndinni og lítilsháttar él. Hiti breytist lítið. Á sunnudag:Austan og suðaustan 3-8 og víða léttskýjað, en 8-13 með suðurströndinni og skýjað. Hiti 0 til 5 stig að deginum, en vægt frost í innsveitum fyrir norðan. Á mánudag:Hæg austlæg átt, en 5-10 með suðurströndinni. Lítilsháttar skúrir eða él á Suðausturlandi og Austfjörðum, en þurrt og bjart annars staðar á landinu. Hiti svipaður. Á þriðjudag:Fremur hæg suðlæg átt og bjartviðri, en sunnan 8-13 vestast á landinu og smáskúrir. Hiti 1 til 6 stig, en kringum frostmark norðaustanlands. Á miðvikudag:Líkur á sunnanátt með rigningu og súld, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hlýnar talsvert.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Sjá meira